Innlent

Tvær hugmyndir um losun hafta

Lee Buchheit var einn ráðgjafa ríkisstjórnarinnar sem hittu samráðsnefnd um afnám hafta í gær.
Lee Buchheit var einn ráðgjafa ríkisstjórnarinnar sem hittu samráðsnefnd um afnám hafta í gær. fréttablaðið/Valli
Tvær hugmyndir um losun fjármagnshafta voru kynntar fyrir samráðshópi um afnám haftanna í gær.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins felur önnur hugmyndin í sér að eigendur aflandskróna verði hvattir eða jafnvel knúnir til að skipta eignum sínum yfir í skuldabréf til 30 ára eða meira.

Hin hugmyndin snýst um að leggja flatan útgönguskatt á erlendar sem og innlendar eignir. Það myndi þýða að ef lífeyrissjóðir vildu flytja fjármagn á milli landa yrðu þeir að greiða skatta af þeim fjármagnsflutningum.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru hugmyndirnar ekki fullmótaðar en staða mála verður engu að síður kynnt fyrir fulltrúum slitabúa bankanna þriggja á fundi í dag. Á fundinum í gær var ekki rætt um það hversu hár útgönguskatturinn gæti orðið ef hann yrði lagður á.

Það voru þeir Glen Victor Kim, sérstakur ráðgjafi Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, og Lee Buchheit, lögfræðingur og aðalsamningamaður Íslands í Icesave-málinu, sem hittu samráðshóp um afnám hafta á fundinum í gær. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á sæti í samráðshópnum. Hann sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að afnám gjaldeyrishaftanna yrði ekki sá gróðavegur fyrir íslenska ríkið sem forsætisráðherra boðaði fyrir síðustu kosningar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson boðaði fyrir síðustu þingkosningar að samningar við kröfuhafa myndu skila um 300 milljörðum í ríkiskassann enda lægi kröfuhöfum á að fara með peningana úr landi. Árni Páll segir að ljóst sé eftir fundinn í dag að ekkert slíkt sé í farvatninu. „Þetta er ekkert í líkingu við það sem forsætisráðherra hefur margsinnis sagt, um að það sé rakinn gróðavegur að afnema höft, og það sé hægt að búa til peninga með afnámi hafta,“ sagði Árni Páll. Þvert á móti væri hægt að ráða það af kynningu á fundinum að það væri ekki áætlunin.

Árni Páll sagði að fyrir tveimur árum hefði legið fyrir áætlun um afnám hafta með samningum sem hefði átt að skila 300 milljörðum í ríkiskassann. Núverandi stjórnvöld hefðu ýtt henni til hliðar. „Það sem líka virðist blasa við er að lífeyrissjóðir almennings verði aftast í biðröðinni við afnám hafta og hagsmunir kröfuhafa verði í forgangi. Það er eðlilegt að spyrja núna: Hvað hefur þessi töf kostað?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×