Trúarrit og grundvallarrit um gildismat og siðfræði Sigrún Gunnarsdóttir skrifar 1. apríl 2015 10:57 Biblían er ekki einungis trúarrit, Biblían er líka grundvallarrit um gildismat og siðfræði. Textar Biblíunnar, ekki síst frásögur Nýja testamentisins, hafa mótað gildismat okkar í þúsund ár. Dæmisögur Jesú eru í senn einföld frásögn og djúp viska um kærleika og virðingu. Sagan af miskunnsama Samverjanum grípur hvern sem er og sannfærir okkur um hvað felst í því að eiga náunga og það sé gott að hjálpa náunganum jafnvel þó við þekkjum hann ekki og hann tilheyri ekki sama hópi og við. Umburðarlyndi og náungakærleikur eru grunnstef Nýja testamentisins sem eru hluti af gildismati og siðgæðisvitund okkar. Allar bækur Biblíunnar eru stórmerkilegar og ég á mér þann draum að þekkja þær allar. Uppáhaldsritin eru nú Nýja testamentið, Sálmarnir og Orðskviðirnir sem eru uppspretta visku og trúarsannfæringar og fjalla líka um tilgang lífsins og tilgang samskipta.Snýst um kærleika til Guðs Sögurnar og orð Jesú taka sér bólfestu í huga og hjarta og verða ekki frá okkur tekin hvað sem á dynur. Í hvert sinn sem við heyrum þessi orð verður skilningurinn dýpri og við sjáum orðin í nýju samhengi. Dæmi um djúpa merkingu orða Jesú er Gullna reglan: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ (Matt 7.12) og Kærleiksboðorðið: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matt. 22.37-39). Kærleiksboðorðið hefur haft veruleg áhrif á mig allt frá því að ég var barn en fyrir um 20 árum opnaðist alveg ný vídd í merkingu seinni hluta boðorðsins: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Þetta gerðist þegar ég var við nám í Danmörku í námskeiði um heimspekinginn og guðfræðinginn Sören Kierkegaard. Einu sinni í lest á leið í skólann las ég texta Kierkegaard um þetta boðorð og hann spyr lesandann hver sé forsenda boðorðsins (forudsætningen). Allt í einu var eins og ljós kviknaði. Ég hafði aldrei hugsað út í þetta. Hafði þótt þetta fremur einfalt og snúast um það að vera annt um aðra. En forsendan felst sem sagt í orðunum „eins og sjálfan þig“ og Kierkegaard útskýrir að okkur getur ekki verið annt um aðra eins og sjálf okkur nema að við byrjum einmitt á sjálfum okkur. Byrjunin er forsendan og er umhyggja fyrir okkur sjálfum. Þessi túlkun fannst mér allt í einu svo sjálfsögð og einföld en hafði aldrei heyrt þetta sjónarhorn áður eða hugsað út í þessa hlið boðorðsins. Kærleiksboðorðið snýst um kærleika til Guðs, til sjálfs okkar og til náungans. Túlkun Kierkegaard rímar við áherslur samtímans um jafnvægi sjálfsræktar og sömu ábyrgðar gagnvart náunganum og samfélaginu. Túlkun Kierkegaard er innsýn í djúpa visku Biblíunnar sem er sígild og er fótfesta trúar okkar en ekki síður dýrmæt fótfesta fyrir gildismat og siðfræði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Bóf-ar(ion)? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þetta er ekki allt að koma með fjárlagafrumvarpinu Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Ómarktæk skoðanakönnun Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Ef Trump tapar kosningunum… Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir skrifar Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Sjá meira
Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Varhugaverð þróun í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Guðrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar
Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun