Tottenham áfram í Meistaradeildinni - Crouch međ ţrennu

Vísir Meistaradeildin 25. ágúst 2010 20:36
Peter Crouch fagnar einu marka sinna í kvöld.
Peter Crouch fagnar einu marka sinna í kvöld. Nordic Photos / Getty Images

Tottenham gerði sér lítið fyrir og vann 4-0 sigur á Young Boys frá Sviss í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og samanlagt, 6-3.

Þetta er í fyrsta sinn sem Tottenham tekur þátt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar síðan keppnin hlaut það nafn. Síðast tók Tottenham þátt í Evrópukeppni meistaraliða tímabilið 1961-62.

Young Boys vann fyrri leikinn, 3-2, eftir að hafa komist 3-0 yfir í leiknum. En það var aldrei spurning um hvort væri betra liðið í kvöld.

Fyrsta mark Crouch kom með skalla eftir sendingu Gareth Bale en Jermain Defoe skoraði annað mark Tottenham í leiknum skömmu síðar.

Crouch skoraði svo öðru sinni með skalla í síðari hálfleik og fullkomnaði svo þrennuna með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir að brotið var á Bale. Senad Lulic, leikmaður Young Boys, fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið.

Tottenham verður því meðal þeirra 32 liða sem verða í hattinum á morgun þegar dregið verður í riðla í Meistaradeildinni.



Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Tottenham áfram í Meistaradeildinni - Crouch međ ţrennu