Handbolti

Toppliðin unnu öll

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helena Rut Örvarsdóttir í leik með Stjörnunni. Hún er frábær varnarmaður.
Helena Rut Örvarsdóttir í leik með Stjörnunni. Hún er frábær varnarmaður. vísir/anton
Stjarnan vann góðan sigur á Selfyssingum, 29-26, í Olísdeild kvenna í handknattleik en leikurinn fór fram á Selfossi. Í hálfleik var staðan 17-11 fyrir Stjörnuna og var sigur þeirra í raun aldrei í hættu.

Helena Rut Örvarsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna í dag en Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var með níu í liði Selfyssinga.

Fram vann virkilega góðan sigur á Val, 26-19, í Valsheimilinu og Haukar fóru í frábæra ferð til Vestmannaeyja og unnu góðan sigur á ÍBV, 26-21, á útivelli.

Fram er í efsta sæti deildarinnar með 11 stig, Haukar í því öðru með 10 stig og Stjarnan í þriðja með níu stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×