FÖSTUDAGUR 24. MAÍ NÝJAST 14:25

36 fjármálaráðgjafar útskrifaðir

FRÉTTIR

Tóm stund

Fréttablaðið Bakþankar 28. janúar 2011 06:00
Brynhildur Björnsdóttir
Brynhildur Björnsdóttir
Brynhildur Björnsdóttir skrifar:
Tómstundalíf barna og unglinga er blómlegt á Íslandi. Hér býðst krökkum nám og þjálfun í íþróttum og listum og sjálfsagt einhverju fleiru. Þetta er vel. Íþróttaiðkun stælir líkamann, þolið og þorið og listnám styrkir andann og sköpunargáfuna. Við þurfum fólk í framtíðina sem er sterkt og hraust, skapandi og andríkt. En akkúrat hér og nú eru börn þreytt.

Sumir krakkar á miðstigi grunnskólans æfa fimleika eða sund fjórum til fimm sinnum í viku og að auki boltaíþrótt tvisvar til þrisvar í viku. Mörg þeirra eru svo líka í tónlistarnámi sem krefst spilatíma tvisvar í viku og hljómsveitaræfinga einu sinni í viku. Full skólaskylda er þrjátíu og fimm tímar á viku og ofan á það bætist heimalærdómur. Til samanburðar má nefna að fullorðið fólk á oft í mesta brasi að finna tíma og orku til líkamsræktar tvisvar meðfram fjörutíu stunda vinnuviku.

Foreldrar vilja veita börnunum sínum bestu mögulega æsku og hlú að hæfileikum þeirra. Þegar barnið sýnir áhuga á einhverju tómstundastarfi grípa foreldrarnir tækifærið og gefa börnunum sínum það, kannski minnugir tækifæra sem fóru hjá þeim sjálfum á sama aldri. En ef handboltinn bætist ofan á skíði og selló er hætta á því að hæfileikar fái ekkert ráðrúm til að blómstra.

Það er alveg frábært að framboð á ánægjulegu og metnaðarfullu tómstundastarfi utan hefðbundins skólatíma sé svona mikið og ennþá betra að svo margir foreldrar vilji styðja börnin sín til þess að sinna áhugamálum sínum og ná langt.

En eftir stendur spurningin: er nauðsynlegt að allar tómstundir séu stundaðar með það fyrir augum að búa til afreksfólk í hverri fyrir sig? Væri kannski mögulegt að velja einhverja aðalgrein og stunda annað fyrst og fremst til ánægju og gefa valkosti í tímasókn og æfingafjölda eftir því?

Það mikilvægasta sem ótrufluð og ástrík bernska hefur upp á að bjóða er leikur. Í leik læra börn að vinna úr daglega lífinu, samskipti við jafningja á sínum eigin forsendum og þá hæfileika sem þau þurfa á að halda í framtíðinni. Barn í tölvuleik lærir tölvulæsi sem verður jafn sjálfsögð og bóklæsi í þeirri framtíð sem verður þeirra nútíð. Og kannski það allra mikilvægasta: það er ekkert hættulegt að láta sér leiðast, stöku sinnum. Barn sem leiðist þarf sjálft að finna sér eitthvað að gera.
Í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir að öll börn eigi rétt á að leika sér. Og til þess þarf tóma stund.
Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Bakþankar 24. maí 2013 06:00

Flugvélaði maðurinn

Það er bara tvennt sem ég get sagt við fólk sem gerir það undantekningalítið alveg agndofa. Annað er að mér finnist gaman í flugvélum. Það virðist ekki vera algeng skoðun, sem er óskiljanlegt. Meira
Bakþankar 23. maí 2013 08:00

Sparkað í dekk á grilli

Mér skilst að það sé gjörsamlega dottið úr tísku hjá karlmönnum að eiga flotta bíla. Sjálfsímyndarlega séð fá menn ekkert út úr því lengur. Í dag kaupa menn í ímyndarkrísu sér frekar lítið reiðhjól he... Meira
Bakþankar 22. maí 2013 06:00

Innri maður í iðrum jarðar

Það upplifa allir einhvern tímann eitthvað sem sýnir hvað í þeim býr. Stundir þar sem kringumstæður verða þess konar að það reynir verulega á og innri maður sýnir sig. Meira
Bakþankar 21. maí 2013 10:00

Hin ávanabindandi sigurvíma

Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu "antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á ... Meira
Bakþankar 18. maí 2013 06:00

Játning úr aðdáendaklúbbi Jennifer

Ég veit ekki af hverju ég tók skýra afstöðu í skilnaði sem kom mér ekkert við og ég vissi ekkert um. En ég skyldi halda með Jennifer hvað sem tautaði og raulaði. Þessi Angelina virtist eitthvað tvöföl... Meira
Bakþankar 17. maí 2013 12:00

VSUAHÁÍ og hagvöxturinn

Robert Kennedy sagði eitt sinn að landsframleiðsla mældi allt nema það sem gerði lífið þess virði að lifa því. Meira
Bakþankar 16. maí 2013 07:00

Fegurð

Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora m... Meira
Bakþankar 15. maí 2013 09:00

Girðingarlykkjurnar

Fyrir fáeinum dögum hlustaði ég á sögu sem gerði mig bæði reiðan og dapran í senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkruna... Meira
Bakþankar 14. maí 2013 11:30

Fjölþjóðleg flækja

Góðan dag. Er þessi trefill rétt merktur? Getur verið að hann kosti 4.000 krónur? - No. It is 400 krónur. - Nú jæja, þá ætla ég að fá hann. - Yes. 400 krónur, please. - Gjörðu svo vel. - Thank you. Ha... Meira
Bakþankar 13. maí 2013 07:00

Þroskaheft femínista- hlussa gekk inn á bar…

Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég he... Meira
Bakþankar 11. maí 2013 07:00

Uppáklædd eðla

Þegar ég leit í spegil í morgunskímunni um daginn sýndist mér ég sjá eðlu. Eitthvert skriðdýrslegt blik virtist vera í augum mér og svo virtist sem húðin hefði fengið á sig grænleitan blæ. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 12:00

Bakarinn á Nørregade

Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku. Meira
Bakþankar 10. maí 2013 07:00

Kveðja af botninum

Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum... Meira
Bakþankar 08. maí 2013 07:00

Borgardama bíður eftir vori

Ég skellti mér í drifhvítum strigaskóm í vinnuna í morgun. Skildi úlpuna eftir heima og renndi ekki einu sinni upp jakkanum. Meira
Bakþankar 04. maí 2013 15:00

I approve this message

Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út ... Meira
Bakþankar 03. maí 2013 07:00

Ys og þys út af engu

Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Fra... Meira
Bakþankar 02. maí 2013 13:00

Umburðarlyndi

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins. Meira
Bakþankar 01. maí 2013 09:45

Formennirnir í lífi mínu

Nú er svo komið að í hvert sinn sem ég fer úr fötunum verður mér hugsað til Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra. Ég get útskýrt. Meira
Bakþankar 30. apríl 2013 15:00

Allir vinna, enginn tapar

Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkað... Meira
Bakþankar 29. apríl 2013 08:00

Mitt Ísland og hitt Ísland

Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi. Meira
Bakþankar 27. apríl 2013 06:00

Þingvallastjórnin

Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Só... Meira
Bakþankar 26. apríl 2013 11:00

Samið við hræfugl

Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín ein... Meira
Bakþankar 25. apríl 2013 06:00

Heimskur maður kýs

Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarla... Meira
Bakþankar 24. apríl 2013 06:00

Legið á línunni

Jæja, viljið þið ekki bara fara að hætta þessu stelpur mínar? Hafið þið nokkuð fleira að segja?“ Meira
Bakþankar 22. apríl 2013 07:00

Líf útlendinga

Ég var einmitt að ljúka við æfingaferli sem leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og núna, eftir velheppnaða frumsýningu, er ég byrjuð á íslenskunámskeiði hjá Mími símenntun. Mér finnst íslenskunám mitt hafa ... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Bakþankar / Tóm stund
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000