Fastir pennar

Tollasaga

Ólafur Stephensen skrifar
Þegar innflutningsbann á landbúnaðarafurðum var afnumið árið 1995 var það vegna þess að Ísland hafði gerzt aðili að GATT-samningnum svokallaða, sem Heimsviðskiptastofnunin (WTO) starfar eftir.

Til að vernda innlendan landbúnað fyrir samkeppni lagði Alþingi á himinháa tolla upp á tugi eða jafnvel hundruð prósenta. Samningurinn skuldbatt Ísland hins vegar til að hleypa litlu magni erlendra búvara inn á markaðinn á lægri tollum. Í upphafi var um þrjú prósent innanlandsneyzlu á viðkomandi vöru að ræða, en hlutfallið hækkaði í fimm prósent á sex árum.

Yfirlýst markmið með því að heimila innflutning á þessu litla magni var að auka samkeppni við innlendan landbúnað og stuðla að því að verð til neytenda lækkaði. Strax í upphafi var þó búið til kerfi sem gekk gegn hagsmunum neytenda en verndaði innlenda framleiðendur. Annars vegar var landbúnaðarráðherra fengið geðþóttavald til að ákveða toll á innflutningskvótanum. Hins vegar var tekið upp á því að selja kvótana hæstbjóðanda, sem fyrir vikið neyddist til að velta greiðslunni út í verðið. Niðurstaðan varð þess vegna ekki nein verðlækkun að ráði, heldur fyrst og fremst meira úrval búvara í búðunum.

Á þeim sextán árum sem liðin eru frá því innflutningsbannið var afnumið hefur innanlandsneyzla á ýmsum búvörum aukizt stórlega. Við borðum nú tvöfalt meira af osti og þrefalt til fjórfalt meira af alifugla- og svínakjöti en í lok níunda áratugarins. Innflutningskvótinn miðast hins vegar við neyzluna eins og hún var á árunum 1986-1988. Landbúnaðarráðherrar, hver á eftir öðrum, hafa því lagt mikið á sig til að milda samkeppnisáhrif innflutnings sem nemur rúmlega einu til tveimur og hálfu prósenti af raunverulegri innanlandsneyzlu á þessum vörum!

Geðþóttavald ráðherra var gagnrýnt strax í upphafi og bent á að einn daginn gæti setzt í stól landbúnaðarráðherra maður sem kysi að beita því þannig að í raun væri tekið fyrir allan innflutning með því að gera hann of dýran. Þetta gekk eftir vorið 2009, þegar Jón Bjarnason varð landbúnaðarráðherra. Hann er enn ósvífnari í beitingu þessa valds en forverarnir og hefur komið því þannig fyrir að dýrara er að flytja inn tollkvótann (sem átti að vera á hagstæðari tollum) en vörur með almennum ofurtolli!

Undan þessari stjórnsýslu ráðherrans kvörtuðu Samtök verzlunar og þjónustu til umboðsmanns Alþingis. Í áliti sínu frá því í síðasta mánuði gerir umboðsmaður ýmsar athugasemdir við stjórnsýsluna en tekur þó í raun ekki efnislega afstöðu til hennar, vegna þess að hann telur að heimildir ráðherra séu sem slíkar í andstöðu við stjórnarskrána. Hún bannar að sköttum sé breytt nema með lögum og sömuleiðis að stjórnvaldi sé falið skattlagningarvaldið.

Á rúmum þremur vikum sem eru liðnar frá því að umboðsmaður kvað upp álit sitt hefur ekki heyrzt bofs úr landbúnaðarráðuneytinu til svars. Og enginn stjórnmálamaður virðist líta á það sem hlutverk sitt að tala máli neytenda í þessu máli – fremur en svo mörgum öðrum.

Þetta er leiðinleg saga og augljóslega ekki á enda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×