Tólf prósent atvinnulausra eru erlendir ríkisborgarar 28. desember 2009 12:15
Tólf prósent þeirra sem þiggja atvinnuleysisbætur eru erlendir ríkisborgarar. Persónuvernd hefur úrskurðað að neteftirlit Vinnumálastofnunar sé lögmætt, en Vinnumálastofnun skoðar sérstaklega ip-tölur þeirra sem þiggja bætur. Af þeim 15.017 sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá eru 1.831 erlendur ríkisborgari, samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun sem miðast við lok nóvember. Langflestir þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá þiggja atvinnuleysisbætur og því eru 12 prósent þeirra sem þiggja bætur erlendis ríkisborgarar. Langflestir þeirra eru einstaklingar í byggingariðnaði, verksmiðjustörfum og ýmsum ófaglærðum störfum. Langstærstur hluti þeirra er Pólverjar, eða 1.170 af 1.831. Til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þurfa menn að hafa dvalið hér við vinnu í að minnsta kosti ár, að loknum þeim tíma geta menn að hámarki þegið atvinnuleysisbætur í þrjú ár og þurfa að sýna fram á að þeir séu raunverulega að leita sér að vinnu og að hafi ekki hafnað atvinnutilboðum. Þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur þurfa með reglulegu millibili að stimpla sig inn á vef Vinnumálastofnunar. Þar fylgist stofnunin með IP-tölum þeirra sem skrá sig inn, þ.e í hvaða landi þeir eru staddir er skráning er send, en þeir sem staddir eru erlendis eru ekki taldir í virkri atvinnuleit hér á landi og geta því ekki átt rétt á bótum. Þetta eftirlit var kært til Persónuverndar sem hinn 16. desember síðastliðinn úrskurðaði að þetta væri lögmæt meðferð persónuupplýsinga og rúmaðist innan reglna um persónuvernd. Þetta þjónaði jafnframt lögmætum tilgangi Vinnumálastofnunar og væri eðlilegur þáttur í eftirliti hennar.
Tengdar fréttir Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum atvinnulausra Persónuvernd hefur samþykkt að Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum þeirra sem staðfesta atvinnuleysisskráningu í gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Þannig fylgist stofnunin með því hvort tilkynningar berast frá erlendum IP-tölum. 28. desember 2009 06:45 Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Sjá meira
Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum atvinnulausra Persónuvernd hefur samþykkt að Vinnumálastofnun fylgist með IP-tölum þeirra sem staðfesta atvinnuleysisskráningu í gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Þannig fylgist stofnunin með því hvort tilkynningar berast frá erlendum IP-tölum. 28. desember 2009 06:45