Tónlist

Tólf ár að semja lög á plötuna

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin hefur gefið út EP-plötuna The Way to Survive Anything.
Hljómsveitin hefur gefið út EP-plötuna The Way to Survive Anything.
Morgan Kane gaf á dögunum út á netinu EP-plötuna The Way to Survive Anything.



Hljómsveitin hefur starfað í um fimm ár en platan hefur verið í smíðum í rúm tólf ár, aðallega vegna fullkomnunaráráttu eins lagasmiða hennar, Magnúsar Þórs Magnússonar.

„Hugmyndin var að reyna að semja hina fullkomnu plötu þar sem lagasmíðar halda hlustandanum frá byrjun til enda,“ segir Magnús Þór, sem er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Joy Division.

„Lög hjá mér eru mjög lengi að fæðast. Eitt lagið tók fimm ár að klárast. Ég er mjög lengi að semja lög og hef aldrei skilið lög sem koma út á nokkrum mínútum.“

Morgan Kane hefur verið dugleg að spila á tónleikum og vildi fanga kraftinn þaðan inn á plötuna. „Þetta kom alltaf út sótthreinsað,“ segir Magnús Þór, sem er loksins ánægður með útkomuna.

Hljómsveitin spilar næst á Akureyri, á hátíðinni Ólæti á Ólafsfirði og á Fagrafesti á Dalvík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×