Bíó og sjónvarp

Tökur á nýrri kvikmynd í Reykjavík

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson sýpur hér á kaffi á milli takna glaður í bragði
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson sýpur hér á kaffi á milli takna glaður í bragði
Undanfarið hafa staðið yfir tökur á nýrri kvikmynd í Reykjavík eftir Sólveigu Anspach. Myndin heitir L‘effet Aquatique og er íslensk/frönsk framleiðsla.

Hún skartar mörgum þekktum íslenskum leikurum og þar má nefna Diddu Jónsdóttur, Frosta Jón Runólfsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhannes Hauk Jóhannesson, Kristbjörgu Kjeld og Nönnu Kristínu. Aðalhlutverkin leika frönsku leikararnir Florence Loiret Caille og Samir Guesmi en þau eru nokkuð þekktir leikarar í Frakklandi.

Tökur fóru meðal annars fram í tónlistarhúsinu Hörpu, Ráðhúsi Reykjavíkur, Hvalfirði og víðar.

Um er að ræða gamanmynd og er hún í raun framhald af myndunum Skrapp út og Queen of Montreiul sem Sólveig leikstýrði einnig.



Sólveig Anspach leikstýrir myndinni. Þá leikstýrði hún einnig myndinni, Lulu Femme Nue, en sú mynd sýndi mestan hagnað árið 2013 í Frakklandi.Vísir
Leikstjóri myndarinnar er, eins og fyrr segir, Sólveig Anspach en hún hefur leikstýrt fjölda mynda, líkt og íslensku myndunum Stormviðri og Skrapp út.

Á undanförnum árum hefur hún sannað sig sem einn af fremstu leikstjórum Frakklands og var seinasta mynd hennar, Lulu Femme Nue, sú mynd sem sýndi mestan hagnað árið 2013 þarlendis. Sólveig skrifar einnig handritið ásamt Jean-Luc Gaget.

Zik Zak kvikmyndir og Ex Nihilo framleiða myndina. Zik Zak hefur meðal annars framleitt kvikmyndirnar Nói albinói, Brim, Eldfjall, Svartur á leik og París norðursins.

Hér sjáum við hluta af þeim búnaði sem notaður var í upptökunum.
Hér er hluti hópsins að gera klárt fyrir upptökur en þær fóru fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu á dögunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×