Bíó og sjónvarp

Tökur á Bollywood-draugamynd á Vestfjörðum frestast vegna handritsbreytinga og snjóleysis

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá Önundarfirði.
Frá Önundarfirði. Vísir/Pjetur
Til stóð að hefja tökur á Bollywood-mynd í Önundarfirði á Vestfjörðum í vikunni en þeim hefur verið frestað vegna þess að ákveðið var að ráðast í handritsbreytingar.

„Svo er allt snjólaust á Íslandi,“ segir Búi Baldvinsson hjá Hero Productions sem átti að koma að framleiðslu myndarinnar hér á landi.

Greint var fyrst frá fyrirhuguðum tökum myndarinnar á vef Ríkisútvarpsins en um er að ræða hrollvekju um konu sem er andsetin íslenskum draug en inn í atburðarásin átti að fléttast mikið eldgos.

Til stóð að 60 manns yrðu í um mánuð í Önundarfirði við tökur á myndinni í Holti en ekkert verður úr því í bili þar sem ákveðið var að ráðast í handritsbreytingar sem munu hafa í för með sér að fleiri leikara þarf í myndina sem og að skipuleggja frekari tæknilega úrvinnslu hennar.

Kvikmyndagerðarmennirnir höfðu vonast eftir miklum snjó á svæðinu fyrir myndina en nú er allt autt á Vestfjörðum, líkt og annars staðar á landinu.

Búi segir að fyrirhugaðar séu tökur á tveimur Bollywood-myndum til viðbótar í sumar en þær tökur gætu einnig farið fram á Vestfjörðum. Ólíkt draugamyndinni þó á að vera mikið um lit, gleði og dans, líkt og hefðbundnum Bollywood-myndum sæmir.

Þeir sem ætluðu að gera draugamyndina voru hér á landi síðastliðið haust við tökur á tónlistarmyndbandi fyrir kvikmynd sem nú er í eftirvinnslu og kom Hero Productions að framleiðslu þess hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×