Tóku dóttur sína úr skóla af ótta við að hún hitti geranda 30. september 2011 07:00
Foreldrar á Akranesi hafa ekki sent dóttur sína í skólann í rúma viku af ótta við að þar muni hún hitta unglingspilt sem nýverið kom í ljós að hefur brotið gegn henni kynferðislega. Telpan stundar nám í einum af yngri bekkjum annars grunnskóla bæjarins og drengurinn er í unglingadeild sama skóla. Telpan greindi foreldrum sínum frá brotunum í janúar. Þau áttu sér stað þegar hún var á síðasta ári í leikskóla og drengurinn var tólf ára. Telpan var þá tíður gestur á heimili drengsins. Foreldrarnir fóru með málið til lögreglu, sem tilkynnti það til barnaverndaryfirvalda. Bæði telpan og drengurinn hafa síðan hlotið viðhlítandi aðstoð. Foreldrarnir hafa síðan reynt að fá skóla- og bæjaryfirvöld til að koma í veg fyrir samgang dóttur sinnar við piltinn, en án árangurs. Í stöðumati Barnahúss vegna telpunnar frá í ágúst segir að gerðar hafi verið viðeigandi ráðstafanir innan skólans til að tryggja að þau hittust ekki, til dæmis í frímínútum og í matsal, en foreldrarnir telja skólann hafa svikið það loforð og leiðir þeirra liggi reglulega saman. Þetta valdi stúlkunni mikilli vanlíðan og því hafi þau ákveðið að taka telpuna úr skóla þar til viðunandi lausn fyndist. Sálfræðingur Barnahúss segist í svari til foreldranna hafa verið bjartsýnn á það í byrjun að ekki þyrfti að aðskilja börnin. „En eftir því sem liðið hefur á meðferð stúlkunnar hefur skoðun mín hvað það varðar tekið miklum breytingum þar sem [hún] sýnir alvarleg kvíða- og streitueinkenni sem frekar hafa aukist en hitt undanfarið." Skóla- og bæjaryfirvöld bera hins vegar fyrir sig að barni verði ekki vikið úr skóla eða það fært annað nema það hafi brotið verulega gegn agareglum skólans. Í þessu tilviki hafi brotið verið alls ótengt skólanum og því verði pilturinn ekki færður annað án samþykkis foreldra sinna. Pilturinn hefur hitt sálfræðing vegna málsins og kemur fram í minnisblaði bæjaryfirvalda vegna þess að sú meðferð hafi gengið vel, hann hafi horfst í augu við gerðir sínar og fylgt öllum fyrirmælum. Litlar líkur séu á því að hann brjóti aftur af sér.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira