Sport

Tíundi titill Djokovic í ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Djokovic vinnur öll mót sem hann tekur þátt í. Hann er hér að fagna sigri á Wimbledon.
Djokovic vinnur öll mót sem hann tekur þátt í. Hann er hér að fagna sigri á Wimbledon. vísir/getty
Besti tennismaður heims, Novak Djokovic, er hreinlega óstöðvandi þessa dagana.

Hann tryggði sér sigur á Paris Masters í gær. Þá lagði hann Andy Murray í úrslitum, 6-2 og 6-4. Þetta var í fjórða sinn sem Djokovic vinnur þennan titil.

Það er ljóst að Djokovic mun enda í efsta sætinu á heimslistanum um áramótin en það verður í fjórða sinn á síðustu fimm árum sem það gerist.

Þetta ár hjá honum er eitt það besta í sögu íþróttarinnar og það besta frá upphafi að mati sumra sérfræðinga.

Hann hefur aðeins tapað fimm leikjum á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×