Innlent

Tíu metra með tíu lítra

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valli
Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar ýtti í dag úr vör vitundarvakningu frjálsra félagasamtaka og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem kallast Sterkar stelpur - sterk samfélög.

Átakið stendur yfir alla næstu viku. Vigdís gekk tíu metra spöl með tíu lítra vatnsfötu á höfðinu að hætti afrískra stúlkna en athöfnin er táknræn og til stuðnings unglingsstúlkum í þróunarríkjum.

Þegar Vigdís hafði leyst verkefnið af hendi skoraði hún á Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra, Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka og Björk Guðmundsdóttur tónlistarkonu að gera slíkt hið sama. 

vísir/valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×