Tíska og hönnun

Tískan við þing­setningu

Guðný Hrönn skrifar
Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé.
Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé. Vísir/Vilhelm
Það voru allir í sínu fínasta pússi við þingsetningu á þriðjudaginn. Ljósmyndarar Fréttablaðsins fylgdust með og tóku myndir af þingmönnunum nýkjörnu. Við rennum hér yfir nokkra sem vöktu athygli.

Fyrsta ber að nefna Björt Ólafsdóttur sem vann tískusigur. Hún klæddist glæsilegri „vintage“ dragt. Dragtin kemur frá Carolina Herrera og var keypt á eBay. Óttarr Proppé hélt sig svo við sína klassísku litapallettu og var eins og hann á að sér að vera.

Katrín Jakobsdóttir og Jóna Sólveig Elínardóttir.Vísir/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir klæddist bróderuðum kjól frá dönskum hönnuði sem sérhæfir sig í umhverfisvænum fatnaði. Kjóllinn er úr lífrænt ræktuðum efnum.

Jóna Sólveig Elínardóttir klæddist ljósum kjól frá Day Birger et Mikkelsen og skóm frá  Billi Bi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.Vísir/Vilhelm
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nýtti það sem hún átti til í fataskápnum og útkoman var flott. Hún segist hafa lagt áherslu á þægindi þegar hún setti dressið saman.

Ólöf Nordal.Vísir/Vilhelm
Ólöf Nordal klæddist kjól eftir Steinunni og japanskri kápu.

Ari Trausti Guðmundsson.Vísir/Ernir
Ari Trausti Guðmundsson var flottur á því í gráum jakkafötum frá Corneliani, í skyrtu frá Bugati og með bindi frá Calvi.

Eliza Reid forsetafrú og Þórunn Egilsdóttir.Vísir/Vilhelm
Forsetafrúin Eliza Reid var flott í kápu frá kanadíska hönnuðinum Marie Saint Pierre. Þórunn Egilsdóttir var svo ansi þjóðleg en upphluturinn var saumaður á hana fyrir rúmum þrjátíu árum og skotthúfan kemur frá langömmu hennar, sömuleiðis hluti af silfrinu.

Guðni Th. Jóhannesson forseti.Vísir/Vilhelm
Forsetinn sjálfur, Guðni Th. Jóhannesson, var flottur í jakkafötum sem hann fékk í gjöf frá vinum. Skyrtan og skórnir koma úr Herragarðinum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.Vísir/Ernir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir klæddist dragt út línunni EDDA X MOSS og blússu og skóm frá Zöru. Svo var hún með hálsmen frá Aurum.

Vilhjálmur Bjarnason.Vísir/Ernir
Vilhjálmur Bjarnason keypti öll sín föt hér og þar í Kringlunni fyrir utan bindið, það keypti hann erlendis. Þá var hann með ermahnappa sem eru erfðagripir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×