Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar: Hjartasteinn og Eiðurinn sópuðu að sér tilnefningum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Nýr verðlaunagripur var kynntur til leiks.
Nýr verðlaunagripur var kynntur til leiks. Vísir/Stefán
Tilnefningar til Eddunnar fyrir árið 2017 voru kynntar í Bíó Paradís í hádeginu við hátíðlega athöfn. 

Þar var einnig frumsýnd ný Eddu-verðlaunastytta ásamt því að nýr flokkur, Sjónvarpsefni ársins, var kynntur. Áhorfendur munu koma til með að kjósa um sigurvegara í þeim flokki. 

Vísir var í beinni frá athöfninni og greindi frá öllu um leið og það gerðist.

Kvikmyndirnar Eiðurinn og Hjartasteinn sópuðu að sér tilnefningum. Eiðurinn hlaut alls 13 tilnefningar og Hjartasteinn 16.

Hér að neðan má sjá allar tilnefningarnar. Verðlaunaafhendingin fer fram á Edduverðlaunahátíðinni sem haldin verður sunnudaginn 26. febrúar á hótel Hilton Reykjavík Nordica.





Barna- og unglingaefni

Stundin okkar. Framleitt af RÚV

Krakkafréttir. Framleitt af RÚV.

Ævar vísindamaður. Framleiðandi RÚV.

Brellur

Pétur Karlsson og Daði Einarsson fyrir kvikmyndina Eiðinn.

Elmar Bragi Einarson og Jökull Þór Sigþórsson fyrir stuttmyndina LjósÖld

Nicolas Heluani fyrir brellur í sjónvarpsþáttunum Orðbragð



Búningar

Steinunn Sigurðardóttir fyrir Eiðinn.

Helga I. Stefánsdóttir fyrir Fyrir framan annað fólk.

Helga Rós V. Hannam fyrir Hjartastein.



Frétta- eða viðtalsþáttur

Á flótta. Framleiðandi RÚV

Kastljós. Framleiðandi RÚV.

Leitin að upprunanum. Framleiðandi Stöð 2



Gervi

Ragna Fossberg og Heimir Sverrisson fyrir gervi í Eiðnum.

Heba Þórisdóttir fyrir gervi í kvikmyndinni Hateful Eight.

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Hjartastein.



Handrit

Ólafur Egill Egilsson og Baltasar Kormákur fyrir Eiðinn.

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Hjartastein.

Anna Svava Knútsdóttir, Arnór Pálmi og Vignir Rafn Valþórsson fyrir Ligeglad.



Heimildamynd

Jökullinn Logar. Framleitt af Purkur og Klipp Productions. 

Keep Frosen. Framleiðandi Helga Rakel Rafnsdóttir.

Ránsfengur (Ransacked). Framleitt af P/E Productions. 



Hljóð


Huldar Freyr Arnarson fyrir kvikmyndina Eiðinn.

Björn Viktorsson og Huldar Freyr Arnarson fyrir kvikmyndina Fyrir framan annað fólk.

Peter Schultz fyrir kvikmyndina Hjartarstein.



Klipping

Sigvaldi J. Kárason fyrir kvikmyndina Eiðinn.

Valdís Óskarsdóttir fyrir kvikmyndina Fyrir framan annað fólk.

Anne Østerud og Janus Billeskov Jansen fyrir kvikmyndina Hjartarstein.



Kvikmynd

Eiðurinn. Framleidd af RVK Studios. Magnús Viðar Sigurðsson og Baltasar Kormákur.

Hjartasteinn. Framleidd af Join Motion Pictures. Anton Máni Svansson.

Sundáhrifin. Framleiðandi Zik Zak Filmworks. Skúli Fr. Malmquist og Patrick Sobelman.



Kvikmyndataka

Óttar Guðnason fyrir kvikmyndina Eiðinn.

Bergsteinn Björgúlfsson fyrir kvikmyndina Fyrir framan annað fólk.

Sturla Brandth Grøvlen fyrir kvikmyndina Hjartastein.



Leikari í aðalhlutverki

Baldur Einarsson fyrir Hjartastein.

Blær Hinriksson fyrir Hjartastein.

Snorri Engilbertsson fyrir Fyrir framan annað fólk.



Leikari í aukahlutverki

Gísli Örn Garðarsson fyrir leik í Eiðinum. 

Pétur Jóhann Sigfússon fyrir leik í Borgarstjóranum. 

Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir leik í Hjartarsteini.



Leikið sjónvarpsefni

Borgarstjórinn. Framleiðandi RVK studios. Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson. 

Ligeglad. Framleitt af Filmus. Arnar Knútsson.



Leikkona í aðalhlutverki

Diljá Valsdóttir fyrir hlutverk sitt í Hjartasteini.

Hera Hilmarsdóttir fyrir Eiðinn.

Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir Grimmd.

Borgarstjórinn er tilnefndur sem besta leikna sjónvarpsefni ársins.Vísir


Leikkona í aukahlutverki


Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Hjartastein

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Hjartastein.

Svandís Dóra Einarsdóttir í Fyrir framan annað fólk.



Leikmynd

Heimir Sverrisson, Atli Geir Grétarsson og Páll Hjaltason fyrir Eiðinn.

Hulda Helgadóttir fyrir leikmynd í kvikmyndinni Hjartastein.

Drífa Ármannsdóttir og Marie Le Garrec fyrir Sundáhrifin.



Leikstjórn

Baltasar Kormákur fyrir Eiðinn.

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Hjartastein.

Sólveig Anspach fyrir Sundáhrifin.



Lífsstílsþáttur

Ferðastiklur. RÚV

Rætur. RÚV

Ævar vísindamaður. RÚV.



Menningarþáttur

Eyðibýli. Framleitt af RÚV. Björn Emilsson

Með okkar augum. Framleitt af Sagafilm. Elín Sveinsdóttir. 

Rapp í Reykjavík. Framleitt af Stöð 2.



Sjónvarpsmaður

Ævar Þór Benediktsson

Andri Freyr Hilmarsson

Brynja Þorgeirsdóttir

Helgi Seljan

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir



Skemmtiþáttur

Áramótaskaup. Framleiðandi RVK Studiós. Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson.

Eddan – engri lík. Framleitt af RÚV. Björn Emilsson

Orðbragð. Framleitt af RÚV. Konráð Pálmason



Stuttmynd

Leyndarmál. Framleiðandi Northern Vision. Jakob Halldórsson og Stella Rín Bieltvedt

Litla Stund hjá Hansa. Framleiðendur Eyþór Jóvinsson og Arcus.

Ungar. Framleitt af Askja Films. Eva Sigurðarsdóttir og Nanna Kristín Magnúsdóttir.



Tónlist

Hilmar Örn Hilmarsson fyrir Baskavígin. 

Hildur Guðnadóttir fyrir Eiðinn

Kristian Selin Eidnes Andersen fyrir Hjartastein



Sjónvarpsefni ársins

Borgarstjórinn. 

Leitin að upprunanum. 

Ligeglad.

Ófærð. 

Rætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×