Handbolti

Tilkynnt um ráðningu Geirs í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir var síðast þjálfari Magdeburg í Þýskalandi.
Geir var síðast þjálfari Magdeburg í Þýskalandi. Vísir/Getty
Handknattleikssamband Íslands mun halda blaðamannafund í dag þar sem, samkvæmt heimildum Vísis, tilkynnt verður um ráðningu Geirs Sveinssonar sem landsliðsþjálfara.

Fundurinn hefst klukkan 15.30 en íslenska landsliðið hefur verið þjálfaralaust síðan að Aron Kristjánsson hætti þann 22. janúar.

Sjá einnig: HSÍ ætlaði að ráða þjálfara í síðasta lagi í dag

Samkvæmt heimildum Vísis hefur staðið til undanfarna daga og vikur að ráða Geir en það hefur dregist vegna viðræðna Geirs við Magdeburg um starfslokasamning. Geir var sagt upp störfum hjá þýska félaginu þann 15. desember á síðasta ári.

Ljubomir Vranjes, þjálfara Flensburg, var boðið að taka starf landsliðsþjálfara að sér en hann hafnaði tilboði HSÍ.

Sjá einnig: Ljubomir Vranjes hafnaði HSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×