Golf

Tiger Woods virðist vel stemmdur fyrir Masters

Woods einbeittur á æfingasvæðinu í dag
Woods einbeittur á æfingasvæðinu í dag Getty
Geoff Shackelford er virtur blaðamaður sem starfar fyrir hið vinsæla tímarit Golf Digest, en hann hefur verið að fylgjast með undirbúningi Tiger Woods fyrir Masters mótið á Augusta National vellinum í dag.

Hann skrifaði á bloggið sitt um hvernig dagurinn í dag hefði verið hjá Woods sem eins og flestir golfáhugamenn vita hefur átt í miklum erfileikum á undanförnu ári.

Woods hefur ekki spilað keppnisgolf síðan snemma í febrúar en þá hætti hann leik á Phoenix Open eftir hræðilega frammistöðu, sérstaklega í kring um flatirnar.

Shackelford skrifar að Woods hafi mætt á æfingasvæðið á Augusta National í dag með heyrnatól í eyrunum, vitandi það að Golf Channel myndi vera með beina útsendingu frá æfingasvæðinu.

Hann æfði vippin hjá sér í rúmlega klukkutíma fyrir framan myndavélarnar og virtist greinilega hafa náð betri stjórn á þeim en stærsta vandamál Woods áður en hann tók sér frí frá golfi voru hræðileg vipp sem kostuðu hann oft á tíðum illa.

Í kjölfarið eltu blaðamenn Woods út á völl og samkvæmt nokkrum þeirra á samskiptasíðunni Twitter virtist Woods vera í frábæru formi á þeim 12 æfingaholum sem hann lék áður en myrkur skall á.

Woods gaf færi á sér í viðtal við blaðamann Golf Channel eftir æfingahringinn og sagðist vera tilbúinn í slaginn fyrir Masters.

„Ég hef verið að taka framförum að undanförnum vikum sem hafa gefið mér nógu mikil sjálfstraust til þess að mér finnist ég geta sigrað á golfmótum aftur. Það er gott að vera kominn á þann stað á ný.“

Shackelord endaði bloggfærsluna sína á þeirri staðreynd að Woods reynir yfirleitt að forðast kastljós fjölmiðla í aðdraganda stórmóta en hann stillti sér samt sem áður fyrir framan myndavélar Golf Channel í klukkutíma og sýndi allar sínar bestu hliðar í stutta spilinu.

Það gætu verið skilaboð þessa goðsagnakennda kylfings til keppinauta sinna að hann er mætur á Augusta National til þess að berjast um sigurinn en Masters mótið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×