Innlent

Þyrla sótti tvo veika menn

vísir/vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mjög veikan erlendan ferðamann í Drekaskála norðan Vatnajökuls á fimmta tímanum í dag.

Í sömu ferð sótti þyrlan annan mann sem veikst hafði um borð í rútu við Dyngjuháls norðvestan Kárahnjúka.

Í nótt hafði Breti, sem staddur var í Drekaskála, kvartað undan miklum kviðverkjum og var þyrlan því kölluð út. Þyrlan lenti með manninn á Reykjavíkurflugvelli klukkan rúmlega sex í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×