Erlent

Þyrla með sex innanborðs hrapaði á Ítalíu

atli ísleifsson skrifar
Campo Felice.
Campo Felice. Vísir/Getty
Björgunarþyrla með sex manns innanborðs hrapaði í fjalllendi á miðri Ítalíu fyrr í dag.

Ítalskir fjölmiðlar segja þyrluna hafa hrapað á skíðasvæðinu Campo Felice eftir að hafa sótt slasaðan skíðamann. BBC greinir frá.

Atvikið tengist ekki björgunaraðgerðum við Rigopiano hótelið skammt frá í Abruzzohéraði, þar sem fjórtán lík hafa fundist eftir að snjóflóð féll í síðustu viku. Fimmtán manns er þar enn saknað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×