Þúsund milljóna króna leiga hjá HR Þorbjörn Þórðarson skrifar 12. janúar 2010 19:15
Háskólinn í Reykjavík átti að greiða þúsund milljónir króna á ári í leigu af skólabyggingunni sem tekin var í notkun í gær, en getur ekki staðið undir því. Skólinn er við það að ná samkomulagi við leigusalann um 40 prósent afslátt af leigunni. Það dugir þó ekki fyrir afborgunum leigusalans af lánum sem hann tók vegna byggingar skólans. Áætlaður byggingarkostnaður vegna nýrrar byggingar Háskólans í Reykjavík er 12-16 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Eigandi húsnæðisins er Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. sem hefur farið mikinn í kaupum á fasteignum í sveitarfélögum, t.d Reykjanesbæ og Álftanesi. Samkomulag sem Fasteign og Háskólinn í Reykjavík gerðu vegna hinnar nýju skólabyggingar felst í því að helmingurinn af leiguverðinu var tengdur við gengi evru, því hækkuðu leigugreiðslurnar mikið miðað við upphaflegrar áætlanir þar sem byggingarkostnaður varð talsvert hærri í kjölfar gengisfalls krónunnar. Vegna hækkunarinnar hefðu leigugreiðslur HR átt að vera þúsund milljónir króna á þessu ári, sem skólinn gat engan veginn ráðið við. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru Háskólinn í Reykjavík og Eignarhaldsfélagið Fasteign nálægt samkomulagi um afslátt á leiguverðinu, sem verður um 600 milljónir króna á ári, eða um 20 prósent af tekjum skólans, en hann fær rúmlega 2,3 milljarða króna á ári frá ríkissjóði. Íslandsbanki kemur að þessum viðræðum þar sem bankinn heldur utan um 24 prósenta virkan eignarhlut í Fasteign hf. Uppi eru áform um stofnun sérstaks dótturfélags Fasteignar hf. til að halda utan um skólabyggingu Háskólans í Reykjavík. Þessi áform voru samþykkt af bankaráði Íslandsbanka, samkvæmt heimildum fréttastofu. Nokkuð hefur verið rætt um erfiða fjárhagsstöðu Háskólans í Reykjavík. Þorkell Sigurlaugsson, fjármálastjóri HR, sagði í samtali við fréttastofu að rekstur skólans væri jákvæður fyrir árið 2009 og fjárhagsstaða hans væri góð.
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Fleiri fréttir Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Sjá meira