Þurrkuðu kókaín sem lá í jörðu í ár 17. desember 2011 13:00 Ölfusborgir Mennirnir þurrkuðu kókaínið í orlofshúsi í Ölfusborgum.
Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá litháíska karlmenn í kókaínmáli sem upp kom á Suðurlandi í október síðastliðnum. Einum mannanna er gefið að sök að hafa flutt inn rúmlega 374 grömm af kókaíni ætluðu til söludreifingar hér á landi. Fíkniefnin hafi hann flutt hingað í ferðatösku og falið þau í jörðu. Þessum manni, auk hinna tveggja, er svo gefið að sök að hafa í október haft ofangreind efni í vörslu sinni í sumarhúsi í Ölfusborgum. Þar voru mennirnir að bauka við að þurrka þau, því þau voru blaut eftir að hafa legið um eitt ár í jörð. Mennirnir voru einnig með íblöndunarefni auk acetons, edikssýru og fleiri efna. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er ekki vitað með vissu hvar maðurinn gróf kókaínið, en hann mun hafa greint frá málinu með þessum hætti við yfirheyrslur. Umræddur maður hafði á rannsóknarstigi málsins verið úrskurðaður í farbann í héraðsdómi og var þá látinn laus. Hæstiréttur sneri þeim úrskurði við og var maðurinn þá handtekinn aftur og hnepptur í áframhaldandi varðhald, sem rennur út 30. desember næstkomandi. Hinir mennirnir tveir eru í farbanni.- jss
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira