Veðrið setti keppnishaldið á par 3 holu mótinu á Masters úr skorðum í kvöld. Keppni var hætt þar sem að veðurútlitið var ekki gott. Þrumuveður og úrkoma hafa ráðið ríkjum á Augusta og brotnuðu m.a. tré á vellinum aðfaranótt miðvikudags. Von er á þrumuveðri á hverri stundu á Augusta og mótshaldarar taka enga áhættu í slíkum tilvikum þar sem að tugþúsundir áhorfenda eru í stórhættu í slíku veðri.
Padraig Harrington frá Írlandi og Bandaríkjamaðurinn Jonathan Byrd höfðu lokið keppni á 5 höggum undir pari vallar þegar keppni var hætt. Mótshaldarar ákváðu að þeir skyldu deila sigrinum þrátt fyrir að ekki hafi verið hægt að ljúka við keppnina.
Frá því að fyrst var keppt á par 3 holu mótinu samhliða Mastersmótinu árið 1960 hefur sigurvegarinn á par 3 holu mótinu aldrei náð að vinna sjálft risamótið í sömu vikunni. Padraig Harrington og Jonathan Byrd hafa því verk að vinna að afsanna þá "bölvun".
Mastersmótið hefst á morgun, fimmtudag, og verður bein útsending frá mótinu á Stöð 2 sport og hefst útsendingin kl. 19.