Þróttmikil Norðurlönd – aflvana Ísland

Fréttablaðið Aðsendar greinar 08. september 2010 06:00
EFNAHAGSMÁL
Þórður Friðjónsson
forstjóri NASDAQ OMX/Iceland
EFNAHAGSMÁL Þórður Friðjónsson forstjóri NASDAQ OMX/Iceland
Þórður Friðjónsson skrifar:
Tímaritið Newsweek gerði nýlega úttekt á 100 löndum með það að markmiði að velja bestu hagkerfi í heimi (Newsweek, 23.-30. ágúst, 2010). Valið byggði á að finna þau lönd sem veittu bestu tækifærin til að lifa heilsusamlegu og öruggu lífi; nokkurs konar mælikvarði á lífsgæði og tækifæri einstaklingsins til að njóta þeirra.

Þegar litið er yfir lista tíu efstu landa fer ekki milli mála að Norðurlöndin skara fram úr. Finnland trónir á toppnum, Svíþjóð er í 3. sæti, Noregur í 6. sæti og Danmörk í 10. sæti. Vafalaust hefði Ísland skipað virðulegan sess meðal þessara þjóða, ef hrunið hefði ekki átt sér stað, enda hefur landið um langt árabil margoft verið ofarlega á svipuðum listum.




Velferðarkerfi og markaðsbúskapur
Íslenska hagkerfið ber öll megin-einkenni norræna efnahagslíkansins. Hér á landi er oftast bent á velferðarkerfið og málaflokka sem tengjast því, að norrænni fyrirmynd. Sjaldnar er talað um að Norðurlöndin byggja í raun á tveimur stoðum, annars vegar á velferðarkerfinu og hins vegar á vel skipulögðum og öguðum markaðsbúskap sem er aflvélin sem knýr áfram velferðarkerfið.

Ísland virðist ekki komið eins langt í þessum efnum og umræddar frændþjóðir. Til marks um það eru mikil pólitísk afskipti sem tíðum leiða til sérlausna af ýmsu tagi - og jafnvel upptöku samninga sem gerðir hafa verið í góðri trú. Það er t.a.m ekki einleikið hversu mörg mál enda á borði ráðherra og festast þar í lengri eða skemmri tíma. Magma er nærtækt dæmi sem og Helguvíkurverkefnið. Þá er afskaplega óheppilegt hversu það hefur dregist að aflétta þeirri óvissu sem sjávarútvegurinn býr við vegna endurskoðunar kvótakerfisins.

Agaður markaðsbúskapur getur ekki grundvallast á sérlausnum sem ráðast af duttlungum ráðamanna á hverjum tíma heldur byggist hann á skýrum og stöðugum leikreglum. Þessi sjónarmið hafa ekki verið í hávegum höfð hér á landi, samanber nýja úttekt OECD meðal 48 landa á takmörkunum á erlendri fjárfestingu. Aðeins Kína telst búa við meiri takmarkanir en Ísland. Hin Norðurlöndin eru hins vegar öll meðal þeirra landa sem búa við minnstar takmarkanir að þessu leyti og ekki kemur á óvart að Finnland, á toppi lista Newsweek, er opnast Norðurlanda fyrir erlendri fjárfestingu.



Almennar lausnir – virkjum markaðinn

Orkugeirinn getur orðið aflvaki hagvaxtar á Íslandi á næstu árum, en þó ekki án aðkomu erlends fjármagns. Í Fréttablaðinu í sl. viku benti ég á fordæmi Norðurlandanna. Þau hafa sætt sjónarmið þeirra sem álíta að hið opinbera eigi að hafa tögl og hagldir við nýtingu auðlinda og hinna sem telja nauðsynlegt að sækjast eftir áhættufjármagni einkaaðila. Ákvörðun um að hafna alfarið þátttöku einkaaðila yrði í reynd ákvörðun um annaðhvort að skuldsetja að óþörfu fyrirtæki í eigu hins opinbera eða hægja verulega á uppbyggingu atvinnulífsins. Mjög er hvatt til þess að lífeyrissjóðir fjárfesti með peningum almennings í fyrirtækjum, semji um einstök verkefni beint við stjórnvöld og taki þátt í ýmsum verkefnum.Þetta er góðra gjalda vert, ef rétt er að málum staðið. Hins vegar telja sumir að almenningur kunni ekki fótum sínum forráð í í fjárfestingum í fyrirtækjum. Fyrst eigi einhverjir snillingar, stórfjárfestar, að fá fyrirtækin og umbreyta þeim - og síðar megi hleypa almenningi að þegar verðmæti fyrirtækjanna hefur aukist. Þessu er gjarnan haldið fram í nafni umhyggjusemi fyrir almenningi. Þetta eru vægast sagt vafasöm rök, ekki síst úr röðum þeirra sem fyrir eru að höndla með fjármuni almennings. Hagsmunum almennings er ekki best borgið með slíkri forræðishyggju. Þvert á móti er honum þannig neitað um hlutdeild í ágóðanum sem fylgir endurreisn efnahagslífsins. Ekki er síður alvarlegt að þessar úrtöluraddir hefta aðgang fyrirtækja að fjármagni og draga að óþörfu þróttinn úr starfsemi þeirra.

Hverfa þarf sem fyrst af þessari braut sérlausna og pólitískra afskipta. Það er alveg ljóst að núverandi skipulag og vinnulag mun ekki færa okkur bætt lífskjör og stöðu meðal þeirra þjóða sem standa sig best á sviði efnahagsmála. Við þurfum því sem fyrst að virkja markaðinn með svipuðum hætti og hin Norðurlöndin hafa gert með góðum árangri og reka hér á landi öflugan markaðsbúskap eins og þar er gert. Bestu hagkerfi í heimi verða ekki byggð á sérlausnum heldur markaðslausnum.




Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Þróttmikil Norðurlönd – aflvana Ísland