Körfubolti

Þrjú töp í röð hjá Herði og félögum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. Vísir/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmson náði sér ekki á strik í 96-76 tapi Mitteldeutscher BC gegn Fraport Skyliners í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, en staðan í hálfleik var 43-40 Fraport í vil. Í síðari hálfleik reyndust Fraport mun sterkari og unnu að lokum 20 stiga sigur, 96-76.

Hörður skoraði fimm stig, hitti úr tveimur skotum sínum af sjö, en hann gaf einnig tvær stoðsendingar.

Tapið var þriðja tap Mitteldeutscher í röð, en þeir hafa einungis unnið tvo af síðustu tíu leikjum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×