Þrjú frumvörp um Seðlabanka lögð fram Heimir Már Pétursson skrifar 9. febrúar 2009 12:27 MYND/GVA
Svo gæri farið að forsætisráðherra verði undir í atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag, þegar ákveðið verður í hvaða nefnd frumvarp hennar um Seðlabankann verður sent. Greidd verða atkvæði um tvö frumvörp um Seðlabanka Íslands á Alþingi í dag, að lokinni fyrstu umræðu um þau. Annars vegar er frumvarp forsætiasráðherra og hins vegar frumvarp þriggja þingmanna Frjálslynda flokksins. Nú liggja þrjú frumvörp um Seðlabanka Íslands fyrir Alþingi, en auk tveggja áðurnefndu frumvarpanna, er frumvarp frá Framsóknarmönnum nú til umræðu í viðskiptanefnd. Það frumvarp gerir ráð fyrir að stöður seðlabankastjóranna verði auglýstar en áfram gert ráð fyrir að þeir verði þrír eins og nú. Í frumvarpi forsætisráðherra og þingmanna Frjálslynda flokksins er hins vegar gert ráð fyrir að að bankastjórinn verði einn. Birkir Jón Jónsson þingmaður Framsóknarflokksins lagði til í umræðum um frumvarp forsætisráðherra á föstudag, að frumvarpinu yrði vísað til viðskiptanefndar en ekki til efnahags- og skattanefndar eins og forsætisráðherra leggur til. Staða stjórnarflokkanna er sterkari í efnahags- og skattanefnd, þar sem Samfylkingin og Vinstri grænir eiga fimm fulltrúa af níu og þurfa því ekki stuðning Framsóknarmanna við afgreiðslu málsins út úr nefnd. Stjórnarflokkarnir eru hins vegar aðeins með þrjá af níu fulltrúum í viðskiptanefnd og þyrftu því á stuðningi Framsóknarmanna að halda til að afgreiða málið úr nefnd. Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali við fréttastofu í morgun að Sjálfstæðismenn teldu eðlilegt að Seðlabankafrumvarp ríkisstjórnarinnar færi til viðskiptanefndar. Frumvörp um Seðlabankann færu yfirleitt til þeirrar nefndar. Það er því ljóst að ef Framsóknarmenn greiða atkvæði samkvæmt tillögu Birkis Jóns og Sjálfstæðismenn gera það líka, munu stjórnarflokkarnir verða undir í atkvæðagreiðslu um afgreiðslu málsins. Hvaða þýðingu það hefur síðan fyrir framgang frumvarpsins er annað mál, en ljóst að þar mun vilji Framsóknarflokksins ráða miklu. Reikna má með að atkvæðagreiðslan fari fram um klukkan fjögur í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnum og utandagskrárumræðum um hvalveiðar, sem fram fer að ósk Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Eldur í Árbænum Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Sjá meira