Erlent

Þrír létust í rútuslysi í Noregi

Atli Ísleifsson skrifar
Farþegar rútunnar voru allir svissneskir ferðamenn.
Farþegar rútunnar voru allir svissneskir ferðamenn. Vísir/AP
Þrír farþegar létust og nokkrir slösuðust alvarlega þegar að rúta með erlendum ferðamönnum valt á E6 þjóðveginum í Namsskogan í Norður-Þrændalögum í Noregi fyrr í dag.

Sextán farþegar voru í bílnum, auk rútubílstjórans. Á vef NRK segir að farþegarnir hafi allir verið Svisslendingar. Sjónarvottar segja í samtali við NRK að nokkrir farþeganna hafi skotist úr um rúðurnar á rútunni þegar hún valt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×