Þriðjungur barna á Íslandi fæðist innan hjónabands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júlí 2014 11:10 Vísir/Vilhelm
Frjósemi íslenskra kvenna var sú lægsta í tíu ár árið 2013. Flest börn fæddust í ágústmánuði líkt og árið 2012. Árið 2013 fæddust 4.326 börn á Íslandi, sem er nokkur fækkun frá árinu 2012 þegar hér fæddust 4.533 börn. Það komu 2.129 drengir í heiminn og 2.197 stúlkur árið 2013, sem jafngildir 969 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum. Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar. Árið 2013 var frjósemi íslenskra kvenna lægri en tveir í fyrsta sinn frá 2003, eða 1,932 börn á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Undanfarin ár hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um 2 börn á ævi hverrar konu. Frjósemin nú er nærri helmingi minni en hún var um 1960, en þá gat hver kona vænst þess að eignast rúmlega 4 börn á ævi sinni. Frjósemi á Íslandi hefur verið hærri en annars staðar í Evrópu á síðustu árum. Ásamt Íslandi hefur frjósemi verið yfir tveimur í Frakklandi, á Írland og í Tyrklandi síðustu ár en verið að meðaltali 1,6 í 28 löndum Evrópusambandsins. Lægst var fæðingartíðnin innan álfunnar í löndum Suður-Evrópu árið 2012. Þar var hún á 1,28 í Portúgal, 1,32 á Spáni og 1,34 á Grikklandi. Flest nýfædd börn í fyrra voru skrásett með lögheimili í Reykjavík (1.719), í Kópavogi (487) og í Hafnarfirði (374). Flestar fæðingar voru í ágústmánuði (402) en fæstar í desember (329). Árið 2012 fæddust einnig flest börn í ágúst (432) og fæst í desember (337).Meðalaldur mæðra hækkar Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og konur eignast sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldurinn hækkað og var 27,3 ár í fyrra. Algengasti barneignaaldurinn er á milli 25-29 ára sem og 30-34 ára. Á þessum aldurbilum fæddust 117 börn á hverjar 1.000 konur árið 2013. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu í fyrra var 7,1 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á árabilinu 1961-1965, en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Aðeins tæplega þriðjungur barna á Íslandi fæddist í hjónabandi árið 2013 (31,7%). Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt frá því um miðjan 10. áratug nýliðinnar aldar, en þá var það 36,5%. Frá 1961 til 1996 lækkaði hlutfall þeirra barna sem fæddust í hjónabandi úr 74,3 % í 36,5%. Á sama tíma hækkaði hlutfall þeirra barna sem fæddust í óvígðri sambúð úr 13,4% í 50,9%. Þetta hlutfall er nær óbreytt árið 2013 (51,9%). Nokkuð fleiri börn fæddust því utan sambúðar eða hjónabands í fyrra en á árunum 1961-1956 (16,3% á móti 12,4%).Af löndum Evrópu fæðast fæst börn innan hjónabands á Íslandi Af 28 löndum Evrópusambandsins fæddust 39,3% barna utan hjónabands árið 2012. Sama ár fæddust 66,9% barna á Íslandi utan hjónabands. Næstólíklegast er að börn fæðist innan hjónabands í Eistlandi (58,4%), Slóveníu (57,6%) og síðan Búlgaríu (57,4%). Til samanburðar fæðast varla börn utan hjónabands í Tyrklandi (2,6%), Grikklandi (7,6%) og Makedóníu (11,6%). Á Norðurlöndunum var rúmlega helmingur allra barna fæddur utan hjónabands árið 2012.Aðferðir Tölur um fæðingar ná til allra barna mæðra sem eiga lögheimili á Íslandi, hvort heldur sem þau eru fædd innanlands eða utan. Börn sem fædd eru á Íslandi en eiga lögheimili erlendis eru ekki talin með. Með fæðingum á Íslandi eru taldar 50 fæðingar erlendis, enda höfðu mæður þeirra barna lögheimili á Íslandi þegar þær fæddu börn sín.
Mest lesið Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Innlent Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli Innlent Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Erlent Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Innlent „Þetta er bara rétt að byrja“ Innlent Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Innlent Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Innlent „Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Innlent Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Innlent Fleiri fréttir Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi „Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar Ekki séð ástæðu til að leggjast gegn framgangi samgöngusáttmálans „Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“ Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Segja ummæli Quang Le tilhæfulaus og ósönn Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Sjúklingurinn þurfi að vera með í allri ákvörðunartöku Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Lögmaður Yazans sakar yfirvöld um lögbrot „Þetta er bara rétt að byrja“ Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum „Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“ Sjá meira