Þorgerður lýsir áhyggjum af Framsókn 15. maí 2007 18:47
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti áhyggjum af innri vanda Framsóknarflokksins í hádegisviðtalinu á Stöð tvö og andstöðu meðal framsóknarmanna við endurnýjun stjórnarsamstarfs. Hún telur einsýnt að farið verði í endurskipulagningu Stjórnarráðsins og atvinnuvegaráðuneyti sameinuð.Þorgerður segir gott traust ríkja á milli stjórnarflokkanna en er samt ekki viss um framhald samstarfsins. Hún vitnaði til ummæla Bjarna Harðarsonar, hins nýkjörna þingmanns, í Silfri Egils um helgina, og einnig til skrifa Einars Sveinbjörnssonar, aðstoðarmanns Jónínu Bjartmarz, sem segir að forysta flokksins verði að skilja skilaboð kjósenda og Framsóknarflokkurinn með lægsta fylgi í sinni 90 ára sögu getur fátt annað gert en að sleikja sárin í stjórnarandstöðu. Einar sagði einnig að í sínum huga væri framhald núverandi stjórnarsamstarfs vanhugsað feigðarflan fyrir Framsóknarflokkinn. Aðalheiður Sigursveinsdóttir, aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, minnir hins vegar á þolanlega útkomu flokksins í landsbyggðarkjördæmum og segist því ekki á á neinn hátt sjá að flokkurinn hafi verið kosinn til valdaleysis fyrir landsbyggðina, síður en svo. Það er mín skoðun að flokkurinn eigi að halda áfram að vera þessi drifkraftur, það gerir hann best í ríkisstjórn, segir Aðalheiður.Þorgerður vill að tækifærið nú verði notað til að sameina ráðuneyti. Í hádegisviðtalinu nefndi hún sérstaklega sameiningu landbúnaðarráðuneytis og sjávarútvegsráðuneytis og jafnvel einnig iðnaðarráðuneytis.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira