Handbolti

Þorgerður Anna samdi við Leipzig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorgerður Anna Atladóttir í leik með Val.
Þorgerður Anna Atladóttir í leik með Val.
Þorgerður Anna Atladóttir gekk í gær frá samningi við þýska úrvalsdeildarfélagið Leipzig en þetta kom fram í Morgunblaðinu í adg.

Þorgerður Anna lék síðast með Flint/Tönsberg í Noregi en hefur verið frá vegna axlarmeiðsla síðan í nóvember.

Hún segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi flogið þrisvar til Þýskalands í maí þar sem hún fór í sjúkraþjálfun og læknisskoðun. „Ég tók miklum framförum hjá þeim og í kjölfarið fóru af stað samningaviðræður bæði við mig og við Flint, því ég átti eitt ár eftir af samningi mínum í Noregi,“ sagði hún.

Þorgerður reiknar þó með að ná ekki fyrsta leik tímabilsins. „Ég geri ráð fyrir því að fara frekar hægt í sakirnar svo ég eyðileggi mig ekki frekar. En ef þetta gengur ekki hjá mér í Leipzig þá gengur örugglega voða lítið annað upp hjá mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×