Handbolti

Þórey Rósa búin að semja við Fram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórey Rósa Stefánsdóttir.
Þórey Rósa Stefánsdóttir. vísir/ernir
Landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir fer á kunnuglegar slóðir næsta vetur en hún er búin að semja við Fram.

Hin 27 ára gamla Þórey Rósa hefur spilað með Vipers í Noregi frá árinu 2013 en var áður að spila í Danmörku, Hollandi og Þýskalandi.

Hún staðfestir í samtali við ruv.is að hún sé búin að skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag á Íslandi.

Þetta er mikill og góður liðsstyrkur fyrir Framara en Þórey Rósa hefur spilað 78 landsleiki fyrir Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×