Innlent

Þjónn á Caruso hafnaði atvinnutilboði feðganna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Ragnarsson og Valdimar Jónsson, eigendur húsnæðis veitingastaðarins Caruso í miðbæ Reykjavíkur, buðu nokkrum starfsmönnum staðarins vinnu strax á þriðjudaginn þegar þeir tóku yfir húsið. Ekki liggur fyrir hvort að feðgarnir ætli að halda veitingarekstri áfram í húsi Caruso.

Myndasyrpu frá Caruso í morgun þegar starfsmenn sóttu eigu sínar, einn í einu eftir nafnakalli, má sjá í myndaalbúmi að neðan.

Sylwia Kaczmarska er ein þeirra sem Valdimar bauð vinnu. Hún er barþjónn og hefur unnið á Caruso í tíu ár.

„Mér var auðvitað brugðið eins og öllum öðrum starfsmönnum þegar ég komst að því sem hafði gerst á þriðjudaginn. Valdimar hringir svo í mig seinna þann dag og býður mér vinnu. Mér brá að hann skyldi hringja í mig og vissi varla hvað ég átti að segja en svo sagði ég bara nei, takk,“ segir Sylwia í samtali við Vísi.

Ekkert annað en sorglegt

Margir af þeim starfsmönnum sem komu saman í dag fyrir utan Caruso til að sækja eigur sínar og önnur verðmæti í eigu fyrirtækisins og starfsmanna hafa unnið lengi fyrir José García og konu hans. Þeir bera honum vel söguna.

„Þetta  er bara yndislegt fólk og rosalega gott að vinna fyrir þau,“ segir Íris Heiða Jónsdóttir sem hefur unnið sem þjónn á staðnum í 3 ár. Hún segir góðan anda ríkja á vinnustaðnum enda sé um samheldinn hóp að ræða sem virðist standa þétt við bakið á yfirmanni sínum.

Aðspurð hvað Írisi þykir um aðfarir feðganna Jóns og Valdimars segir hún:

„Þetta er ekkert annað en sorglegt. Það er líka fáránlegt að lögreglan skuli ekkert geta gert í þessu. Þetta er bara rosalega sárt fyrir okkur starfsmennina en ég er til í að leggja allt á mig til að styðja mína samstarfsmenn og yfirmenn.“

Margir af þeim starfsmönnum sem komu saman í dag fyrir utan Caruso til að sækja eigur sínar og önnur verðmæti í eigu fyrirtækisins og starfsmanna hafa unnið lengi fyrir José García og konu hans.Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Veitingamaðurinn á Caruso læstur úti af húseigandanum

José Garcia, veitingamaður á Caruso, læstur úti af staðnum af húseigandanum vegna deilna um leigusamning. Mikið af eignum inni á staðnum og veggur reistur til að varna starfsfólki inngöngu. Kærði atvikið til lögreglu.

Lögreglan gerir ekki neitt í Caruso-málinu

Eigandi veitingastaðarins Caruso fær enga aðstoð frá lögreglu við að komast inn á staðinn eftir að húseigandinn réðst þangað inn og skipti um skrár. Sérfræðingur segir lögregluna með þessu viðurkenna það að menn taki lögin í sínar hendur.

Rekstur Caruso lamaður eftir yfirtöku

José Garcia veitingamaður á Caruso segir framkomu húseigenda ótrúlega og hann efist um að þessi framkoma þekkist í öðrum Evrópulöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×