Innlent

Þingmenn taka kófsveittir á aukakílóum

Jakob Bjarnar skrifar
Kannski ekki fyrstu nöfnin sem mönnum dettur í hug en furðanlega liprir miðað við útlit og atgervi. Þarna kom sér greinilega vel áralöng ballettiðkun Ása á yngri árum, segir Brynjar um sinn fyrsta dag í ræktinni.
Kannski ekki fyrstu nöfnin sem mönnum dettur í hug en furðanlega liprir miðað við útlit og atgervi. Þarna kom sér greinilega vel áralöng ballettiðkun Ása á yngri árum, segir Brynjar um sinn fyrsta dag í ræktinni.
Landsmenn eru nú sjálfsagt margir að velta því fyrir sér hvernig eigi að taka á þeim kílóum sem bættust á búkinn um hátíðarnar. Þingmenn eru þar engin undantekning. Brynjar Níelsson fór í sinn fyrsta líkamsræktartíma í morgun og þegar Vísir hafði samband við hann sagðist hann algerlega búinn. „Meira að segja miðað við Ása og Jón,“ segir Brynjar og vísar þar til þingmanna Sjálfstæðisflokksins, þeirra Ásmundar Friðrikssonar og Jóns Gunnarssonar. Það voru reyndar þeir sem drógu Brynjar af stað í ræktina. Hann segir þá löngu byrjaða.

En, gamla knattspyrnuhetjan getur varla hafa látið sitt eftir liggja í samanburði við þessa menn sem seint geta talist íþróttamannslega vaxnir?

„Nei, gamla knattspyrnuhetjan lætur verulega á sjá og stendur ekki vel að vígi. Ég er í augnabliku nær dauða  en lífi.“ Brynjar segir engar myndir hafa verið teknar til að skrásetja þennan sögulega atburð á „filmu.“ „Nei engar myndir teknar, eiginlega bannað í bili. Vigtun er bönnuð einnig en mér finnst líklegast að ég sé léttastur en bilið er örugglega ekki mikið,“ segir Brynjar.

Brynjar lýsir þessari reynslu fyrir vinum sínum á Facebook við mikinn fögnuð. Hann kallar einkaþjálfarana ofbeldismenn og hann hafi verið látinn drekka einhvern ógeðsdrykk „eftir allar misþyrmingarnar. Með mér í þessum ofbeldisleik eru Jón Gunnarsson og Ási Friðriks. Kannski ekki fyrstu nöfnin sem mönnum dettur í hug en furðanlega liprir miðað við útlit og atgervi. Þarna kom sér greinilega vel áralöng ballettiðkun Ása á yngri árum.“

Þingmenn eru reyndar í betri aðstöðu til að skokka á hlaupabrettum líkamsræktarstöðva en gerist og gengur meðal pöbulsins, en árið 2012 voru samþykkt umdeild lög á Alþingi sem kveða á um ýmis hlunnindi þingmanna, svo sem frí gleraugu, heyrnartæki og ókeypis líkamsrækt. Brynjar segir spurður um hvort þeir hafi ekki notfært sér þetta að það séu engin sérkjör eða spilling í þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×