Innlent

Þingmenn Framsóknar telja ekki sjálfsagt að flýta kosningum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Vísir
Þeir þingmenn Framsóknar sem Vísir hefur rætt við í morgun eru flestir á því máli að ekki sé sjálfsagt að flýta þingkosningum fram á haust. Þetta rímar við ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins í bréfi til Framsóknarmanna á dögunum.

Kosningar í haust voru meðal annars forsenda áframhaldandi stjórnarsamstarfs Sjálfstæðis- og framsóknarflokks eftir hið svokallaða Wintris mál í apríl síðastliðnum. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokkins hefur jafnframt ítrekað í samtali við RÚV að kosið verði í haust.

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar sagðist í samtali við Vísi ekki botna í því hvernig stjórnskipun landsins er túlkuð, ef vantraust á ríkisstjórn er fellt en samt sé kosningum flýtt. „Þetta er meðal annars ástæða þess að ég tók endanlega ákvörðun um að hætta. Þetta rugl sem er orðið í þinginu,“ segir Vigdís.

Áhyggjur af framtíðinni og verkefnum ríkisstjórnar

Silja Dögg Gunnarsdóttir segist hafa áhyggjur af því að loforð um kosningar í haust hafi verið of mikil fljótfærni. Hún telur jafnframt efast um að hægt sé að afgreiða fjárlög með góðu móti, sé stefnt á kosningar í haust. Þá telur hún nauðsynlegt að hugsa ákvörðunina til lengri tíma, þetta geti sýnt fordæmi fyrir hvernig sé tekið á ólgu í samfélaginu. „Viljum við þetta þegar eitthvað gerist? Viljum við alltaf fara í kosningar eða viljum við afgreiða málin öðruvísi?“ segir Silja Dögg í samtali við Vísi.

Jafnframt segir Silja Dögg að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hafi verið mjög skýrir um að ætla að standa við kosningar. „Ég sé ekki að því verði breytt úr þessu, þó ég hefði viljað draga þær allavega fram yfir áramótin upp á fjárlögin.“

Líneik Anna Sævarsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson eru bæði á sama máli um að nauðsynlegt sé að klára þau verkefni ríkisstjórnarinnar sem liggja fyrir áður en gengið er til kosninga. „Við erum ennþá sömu skoðunar að það þurfi að klára þau mál ef að það á að kjósa í haust.“ sagði Þorsteinn í samtali við Vísi og bætti jafnframt við að ef vilji er til sé hægt að afgreiða þau mál sem brýnust eru. Aðspurð segir Líneik Anna að þau mál sem brýnast sé að klára séu umgjörð húsnæðis- og fjármálamarkaðar í landinu, sem og velferðarmál.


Tengdar fréttir

Stóru málin fyrst, kosningar svo

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að kosningar í haust byggi á að búið verði að afgreiða þau stóru mál sem ríkisstjórnin ætlar sér að klára á kjörtímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×