Glamour

Þetta heitir að slást um föt

Ritstjórn skrifar
Eins og við var að búast varð allt vitlaust þegar Balmain línan mætti í verslanir H&M í dag.

Ekki nóg með að netverslun H&M hafi hrunið hvað eftir annað í dag heldur varð uppi fótur og fit þegar æstir viðskiptavinir ruddust inn þegar loksins var opnað.

Víða var fólk búið að koma sér fyrir og hafði beðið fyrir utan verslanirnar í að minnsta kosti sólarhring og þegar loksins var opnað streymdu vægast sagt æstir viðskiptavinir inn í verslunina og hlupu um verslunina til að ná drauma flíkinni.

Af myndbandinu hér fyrir neðan að dæma má teljast mildi ef allir sluppu ómeiddir úr þessum hasar.


Tengdar fréttir






×