Enski boltinn

Þessum geta ensku liðin mætt í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arsenal-menn höfðu betur á móti Paris Saint-Germain í A-riðli en geta samt sem áður mætt mjög sterkum liðum í sextán liða úrslitunum.
Arsenal-menn höfðu betur á móti Paris Saint-Germain í A-riðli en geta samt sem áður mætt mjög sterkum liðum í sextán liða úrslitunum. Vísir/Getty
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta lauk í kvöld og þá kom endanlega í ljós hvaða sextán lið verða í pottinum þegar dregið verður í sextán liða úrslit keppninnar á mánudaginn kemur.

Liðin átta sem unnu sinn riðil verða í fyrsta styrkleikaflokki og mæta einu af liðunum í öðrum styrkleikaflokki en þar eru liðin sem enduðu í öðru sæti í sínum riðli. Lið frá sama landi geta þó ekki mæst í sextán liða úrslitunum.

Leicester City og Arsenal unnu bæði sinn riðil en það kemur þó ekki í veg fyrir að þeirra bíður hugsanlega mjög erfiður mótherji í sextán liða úrslitunum.

Arsenal mætir einu af þessum liðum: Benfica, Bayern München, Bayer Leverkusen, Real Madrid, Porto eða Sevilla.

Leicester City mætir einu af þessum liðum: Paris Saint-Germain, Benfica, Bayern München, Bayer Leverkusen, Real Madrid eða Sevilla.

Manchester City endaði í öðru sæti í sínum riðli og mætir einu af eftirtöldum liðum: Napoli, Atletico Madrid, Monakó, Borussia Dortmund eða Juventus.

Þessi átta lið unnu sinn riðil

Arsenal

Napoli

Barcelona

Atletico Madrid

Monakó

Borussia Dortmund

Leicester

Juventus

Þessi átta lið urðu í öðru sæti í sínum riðli

Paris St-Germain

Benfica

Manchester City

Bayern München

Bayer Leverkusen

Real Madrid

Porto

Sevilla




Fleiri fréttir

Sjá meira


×