Þessi tuðandi týpa býr í mörgum okkar Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 23. maí 2015 13:00 Viktoría segir það gott að geta skrifað þessa konu loksins frá sér. Vísir/Vilhelm „
Ég er hrifin af ranti og tuði yfirleitt, og þá sérstaklega fólki sem tuðar ofan í bringuna á sér og gerir ekkert í neinu,“ segir Viktoría Blöndal, ein þeirra sem útskrifast af sviðshöfundabraut sviðslistadeildar Listaháskólans. Verk hennar, Kvikasilfur hafsins, fjallar um konu sem býr í trillu niður á höfn. „Þessi kona hefur farið svolítið á hnefanum í gegnum lífið, dálítið á skjön við samfélagið og farið sínar eigin leiðir,“ segir hún. Viktoría byrjaði að skrifa verkið 2013 og segir hún tuðandi aðalpersónuna vera byggða á mörgum manneskjum sem hún þekkir eða hefur þekkt og jafnvel sjálfri sér líka. „Þessi týpa býr í mörgum, en það eru fáir sem þora að viðurkenna það.“ Verkið verður frumflutt í dag og fékk Viktoría sjö aðila til þess að flytja það. „Þetta eru leikarar, rapparar og alls konar fólk. Þau eru að sjá textann í fyrsta sinn svo þetta verður algjörlega óleikstýrt, óæft og hrátt,“ en flytjendur verða þau Anna Katrín Einarsdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Arnar Freyr Frostason, Baltasar Breki, Íris Tanja, Ingvar Eysteinsson og Bylgja Babýlons. Við skriftir eyddi Viktoría miklum tíma niðri við höfn og þakkar hún hafnarvörðum sérstaklega fyrir aðstoðina. „Ég fékk alveg yndislegt skrifborð hjá þeim þar sem ég gat unnið og klárað verkið. Það er alveg magnað að geta klárað háskólanámið sitt með því að skrifa þessa kellingu úr mér.“ Verkið verður sýnt í sal Hjálpræðishersins í Kirkjustræti 2 kl. 18 í dag, laugardag, á mánudag 25. maí klukkan 19 og fimmtudag 28. maí klukkan 19 og er hluti af útskriftarsýningu nemenda sviðslistadeildar Listaháskólans.
Mest lesið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Selur slapp úr hvalskjafti Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Mætt aftur til vinnu Lífið Fleiri fréttir Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu Sjá meira