Fótbolti

Theodór Elmar: Fékk gæsahúð þegar ég sá boltann í netinu

Kristinn Páll Teitsson á Laugardalsvelli skrifar
Elmar kom frábærlega inn í íslenska liðið í kvöld en hérna heldur hann boltanum frá Tyrkjum.
Elmar kom frábærlega inn í íslenska liðið í kvöld en hérna heldur hann boltanum frá Tyrkjum. Vísir/Ernir
„Þeir eru eitthvað að láta sig dreyma um að skrá þetta sem sjálfsmark en ég er að vinna í því að þeir skrái þetta rétt,“ sagði Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður íslenska landsliðsins, glaðbeittur er hann var spurður út í fyrsta mark Íslands í 2-0 sigrinum á Tyrkjum í kvöld.

„Hann er á leiðinni beint upp í samskeytin en auðvitað er fáránlega ljúft að taka þennan sigur í kvöld. Eftir á sé ég enga neikvæða punkta við leikinn í dag, við lékum þetta fullkomnlega.“

Sjá einnig:Umfjöllun: Ísland - Tyrkland 2-0 | Strákarnir hver öðrum betri í sannfærandi sigri

Fyrsta mark Íslands kom þegar skot Elmars fór af hendi Ömer Toprak og í netið.

„Jói og Gylfi voru búnir að spila vel saman upp vinstri kantinn og Jói lagði hann á mig og ég ákvað að skjóta í fyrsta. Ég var með heppnina með mér í liði,“ sagði Elmar en hann sagði dómarann hafa ætlað að dæma víti því skot hans fór í hönd varnarmanns á leiðinni í netið.

„Hann var kominn með flautuna í munninn þannig ég var ekkert að stressa mig. Svo þegar ég sá hann í netinu þá vorum við ekkert að kvarta. Ég fékk gæsahúð þegar ég sá hann í netinu og þá fann maður hvað stúkan var með okkur í kvöld.“

Alfreð jók forskot Íslands stuttu síðar en Tyrkir náðu varla að ógna marki Íslands eftir það.

„Mér fannst þeir ekki setja neina pressu á okkur, við vorum vel skipulagðir og þéttir fyrir. Við hlupum allir ótrúlega mikið í kvöld og gáfum engin færi á okkur í vörninni eins og við höfum vanist.“

Elmar var tekinn af velli stuttu fyrir leikslok undir dynjandi lófataki en hann sagðist hafa fengið krampa út um allan líkama.

„Ég var með krampa í báðum lærum, aftan í kálfa og í rassinum og það gerði manni erfitt fyrir að labba útaf en það var æðislegt að sjá hvernig landsmenn voru að styðja við bakið á okkur þegar maður gekk af velli.“


Tengdar fréttir

Mikið líf á Twitter yfir landsleiknum

Það er alltaf líf og fjör á samfélagsmiðlum þegar íslenska landsliðið í fótbolta leikur og sjaldan er meira fjör en þegar liðið leikur vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×