Þekktur handrukkari stóð að árásinni 18. maí 2013 12:51 Myndin er úr safni Mynd/ VILLI
Tveir menn voru handteknir í gær vegna árásarinnar sem átti sér stað í Breiðholti í gær en ekki er vitað til þess að lögreglan hafi rætt við fleiri vegna árásarinnar. Málið er nú komið til rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árásin átti sér stað í Ystaseli í Seljahverfi í Beiðholti síðdegis í gær. Hvorki ofbeldismennirnir né þolandinn eru íbúar við götuna. Karlmaðurinn sem ráðist var á lá í blóði sínu þegar lögregla kom á vettvang. Vitni að árásinni segja að allt að tíu manna hópur hafi ráðist á manninn og meðal annars misþyrmt honum með hafnaboltakylfu sem skilin var eftir á vettvangi. Var fólki mjög brugðið enda munu börn hafa orðið vitni að atganginum. Í Fréttablaðinu segir að hópurinn hafi umkringt manninn og elt. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu tveir úr hópnum haft sig mest í frammi en annar þeirra er þjóðþekktur handrukkari. Þolandinn mun hafa verið mjög blóðugur á efri hluta líkamans en ekki er vitað nánar um meiðsl hans. Þær fréttir fengust af Landspítalanum að maðurinn væri þar en ekki er vitað hvenær hann verður útskrifaður. Mennirnir sem voru handteknir munu vera á fertugsaldri og hafa margsinnis komið við sögu lögreglunnar áður
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Sjá meira