Tónlist

The Prodigy með ofbeldiskenndan tón

The Prodigy á tónleikum.
The Prodigy á tónleikum. Vísir/Getty
Liam Howlett, forsprakki The Prodigy hefur tjáð sig um að á nýjustu plötu sveitarinnar kveði við nýjan og ofbeldiskenndan tón, eða að hljómurinn sé með ofbeldiskenndu ívafi.

Ný plata frá hljómsveitinni lítur dagsins ljós síðar á árinu en sveitin sendi síðast frá sér plötuna Invaders Must Die árið 2009. Í viðtali við NME sagði Howlett að nýja platan sé villtari og að efnið hljómi ekkert of útvarpsvænlegt.

Árið 2012 tjáði Prodigy sig um að ný plata væri væntanleg og að mögulegur titill plötunnar yrði How To Steal A Jet Fighter. Howlett hefur nú hins vegar sagt að það verði klárlega ekki nafnið á plötunni en hann vildi þó ekki segja frá því hvaða titil platan muni bera.

The Prodigy kemur fram á Sonisphere-hátíðinni um næstu helgi en þar koma einnig fram sveitir á borð við Metallica og Iron Maiden.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×