Handbolti

Það rigndi íslenskum mörkum í Árósum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. vísir/getty
Århus hafði betur í Íslendingaslag í danska handboltanum í kvöld.

Lið þeirra, Århus, valtaði þá yfir Randers, 36-24. Róbert Gunnarsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu báðir fjögur mörk fyrir Århus og Sigvaldi Guðjónsson tvö.

Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Randers og Arnór Stefánsson varði sex skot í marki liðsins.

Århus er í ellefta sæti deildarinnar en Randers er í botnsætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×