Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Fréttablaðið Aðsendar greinar 04. nóvember 2011 06:00
Guðrún Jónsdóttir
verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra
Guðrún Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra
Guðrún Jónsdóttir skrifar:
Eineltismál hafa verið í umræðunni að undanförnu, því miður ekki að ástæðulausu. Þetta virðist vera mein sem er viðvarandi. Afleiðingarnar geta verið hræðilegar og því er þarft að ræða þessi mál þótt þau séu illviðráðanleg og viðkvæm. Samfélagið þarf að vera meðvitað og skoða hvað það er í uppbyggingu þess sem viðheldur þessari hegðun. Við erum öll ábyrg fyrir því að taka á vandanum.

Í skólum landsins hafa verið gerðar ýmsar tilraunir til að bregðast við einelti þegar það kemur upp. Heimili og skóli – landssamtök foreldra hafa bent foreldrum á leiðir til að stemma stigu við því með ýmsum hætti. Meðal þess sem við kynnum fyrir foreldrum í fyrirlestrum okkar eru svokallaðir vinahópar. Þá taka foreldrar sig saman og skipta bekk eða árgangi upp í smærri hópa til að hjálpa börnunum að tengjast á jákvæðan hátt í náinni umsjón ábyrgra aðila. Markmiðið er að gera eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt til að hjálpa börnunum að tengjast og umgangast hvert annað af virðingu.

Stundum kemur það upp að einhverjir foreldrar eru ekki með aðstöðu til að taka þátt. Þá er vert að hafa í huga að það eru oftar en ekki börn þessara foreldra sem þurfa hvað mest á því að halda að vinahópar séu myndaðir. Þeir sem eru sterkari leggja sitt af mörkum til að hlúa að hinum sem minna mega sín.

Ef til vill er þetta hornsteinninn að því að útrýma einelti. Þegar skilningur er fyrir því að við byggjum betri lífsgæði fyrir heildina með því að huga vel að öllum. Þegar hver hugsar aðeins um sig og sinn hag tvístrumst við og sumir verða utanveltu. Þetta þarf ekki að vera svona. Við eigum að vera komin lengra en svo. Einelti er ekki eðlilegur fórnarkostnaður. Einelti er mjög frumstæð hegðun sem byggir á mikilli skammsýni.

Framsýni á að vera markmið þróaðs samfélags, og það að huga að velferð hópsins sem heildar kemur sér vel fyrir alla þegar fram horfir.

Einelti er ekki bundið við börn og unglinga. Það á sér einnig stað hjá fullorðnum. Þetta er samfélagsmein. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Talsmáti á heimili og framkoma við annað fullorðið fólk hefur mikil áhrif á það hvernig börnin okkar haga sér.

Börn eru óvitar. Þau horfa til okkar uppalendanna um leiðsögn og fyrirmæli. Þegar barn leggur annað barn í einelti og sú hegðun er ekki leiðrétt erum við ekki að sinna skyldum okkar sem uppalendur. Það er afar mikilvægt að kenna börnum nærgætni og umburðarlyndi og jafn mikilvægt að muna að það er lærð hegðun, ekki meðfædd.
Skólar landsins virðast úrræðalitlir þegar kemur að því að eiga við einelti. Það má merkja á því að oft hrekjast þolendur eineltis úr skóla sínum til að flýja ofbeldið. Lái það hver sem vill foreldri að taka barn úr skóla sem þurft hefur að þola einelti árum saman. Þegar svo er komið er yfirleitt búið að halda marga fundi með skólastjórnendum, umsjónarkennara og námsráðgjafa með foreldrum þolenda og gerenda. Einhvern veginn virkar ekkert og á endanum taka foreldrar barnið úr skólanum.
Eftir það er oft ekkert meira aðhafst. Þolandinn er bugaður og hrakinn á brott. Skilaboðin frá samfélaginu eru að hann hafi þurft að lúta fyrir ofbeldinu. Gerandinn lærir að ofbeldið hafi borið árangur og sú hegðun virki fyrir hann. Hvað verður um þann einstakling í samfélaginu? Hvað mun hann leggja af mörkum framvegis? Hvernig mun hann ná sínu fram á sínum vinnustað? Sömuleiðis spyr maður hvernig þolandinn muni dafna í framtíðinni?
Öll börn eiga rétt á viðunandi aðstöðu til náms innan síns sveitarfélags. Ábyrgð skóla er því rík að skapa umhverfi þar sem allir geta þrifist. Við eigum að geta krafist þess að þessar stofnanir bregðist við og leysi vandamál sem koma þar upp. Jafnframt þurfa foreldrar að axla sína ábyrgð og koma að lausn málsins eins og þeim er kleift.

Íþróttafélög eru hér ekki undanskilin. Þar er ýtt undir samkeppni og slíkur samanburður getur leitt til eineltis. Þau þurfa að vera meðvituð um og vakandi fyrir að íþróttir hafa uppeldislegt gildi. Foreldrar eiga að fara fram á að þar séu allir hvattir og studdir jafnt.

Fjölbreytileikinn er nauðsynlegur en hann þrífst ekki ef við reynum að steypa alla í sama mót. Það er ábyrgðarhlutur að vera þátttakandi í samfélagi. Innan þess eru ýmsar stofnanir sem gegna tilteknum skyldum til að gera það skilvirkara og betra. Ef þessar stofnanir og kerfi eru ekki að virka sem skyldi, þá kemur upp villa. Sú villa gegnsýrir síðan allt kerfið um ókomna tíð ef ekkert er gert til að laga það og leiðrétta.

Það er mikilvægt að finna lausn og það er eðlilegt að leggja grunninn í upphafi þegar einstaklingurinn er að mótast. Börnin eru framtíðin og við eigum að leggja allt á okkur til að að fyrirbyggja og taka á einelti í skólum landsins. Það mun bera ávöxt. Við munum uppskera vandaðra og betra samfélag sem einkennist af gagnkvæmri virðingu og umhyggju þar sem allir fá sín notið og fjölbreytileikinn fær að dafna.

Við bendum foreldrum á bæklinginn Einelti – góð ráð til foreldra sem unninn var í samvinnu við Þorlák H. Helgason, framkvæmdastjóra Olweusaráætlunarinnar á Íslandi. Má m.a. nálgast hann á heimasíðu samtakanna, heimiliogskoli.is.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Komdu út að leika

Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Að draga börn fyrir dómstóla

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, hvetur til umræðu um hælisleitendur...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Orð forsetans um "skrautdúkku“

Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um mar...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Það læra börnin sem fyrir þeim er haft