Skoðun

Það er kyrrlátt kvöld við fjörðinn

Bubbi Morthens skrifar
Fyrirtæki sem hefur grætt tugi milljarða ákveður vegna græðgi sem er kallað hagræðing á Excel-skjali að hætta starfsemi í litlu bæjarsamfélagi, það er ekki að græða nóg og ástæðan er að krónan er vond við þau þessa stundina. Þegar krónan liggur sveitt og veik undir þunga gróðans þá hvísla þeir í græðgisbríma: Ó, ég elska þig svo heitt. En um leið og krónan er komin á fætur styrkum fótum og vill ekki þýðast þá, þá kalla þeir til blaðamannafundar og ofbeldið er opinberað í örfáum orðum: Við munum hætta allri starfsemi hér og konurnar verða látnar fara. En á meðan sitja máfurinn og múkkinn sveittir við að reikna út arðinn á þessu ári. Enn og aftur detta nokkrir milljarðar í vasana.

Samfélagsleg ábyrgð hlýtur að vera nýyrði í eyrum þeirra sem stjórna, því að ekki virðist það orð hringja bjöllum. Allt fólkið sem hefur unnið af trúmennsku og látið yfir sig ganga langa stranga daga, ljósa sem dökka, það er skotið niður líkt og tívolíendur, bara vegna þess að milljarðamæringarnir eru ekki að græða nóg. Bæjarsamfélagið ákveður af veikum mætti að reyna að þóknast herranum og leitar leiða til að gleðja hann. Þau stóðu tvö föl í svölum sjávarvindi, kona og nýi bæjarstjórinn, og stundu: Við erum í sjokki.

Þetta er gömul saga. Hún gerðist líka í gær og mun gerast aftur á morgun. Örfá fyrirtæki gína yfir gapandi fiskum í sjónum og á þurru landi og skrapa völlinn með Excel-skjölunum sínum. Við viljum græða, þið hjálpið okkur til þess, syngja þeir á árshátíðinni þar sem þangskógurinn bylgjast til og frá og fiskar á þurru landi fá eina kvöldstund að deila sama rými og gróða­guðirnir. Eitt augnablik gleyma þau að þau eru fiskar fastir í netmöskvum manna sem hafa eitt áhugamál. Gróði, ó, þú sæti gróði, ó, þú dásamlegi gróði, umla þeir á milli máltíða.

Svo vakna þeir upp hrópandi nei! Og konan spyr: Fékkstu martröð, elskan?

Og það er stunið upp: Já.

Hvað var það, ljúfurinn?

Mig dreymdi samfélagslega ábyrgð.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×