Sport

Tebow-geðveikin hafin í Philadelphia

Allt er nú til.
Allt er nú til. vísir/getty
Þegar leikstjórnandinn Tim Tebow samdi við Philadelphia Eagles á dögunum fór allt á hvolf.

Þó svo Tebow hafi ekki spilað í NFL-deildinni í þrjú ár og þyki almennt ekkert sérstaklega góður þá er hann ótrúlega vinsæll.

Hann hefur þann afar góða eiginleika að kunna að vinna leiki og margir kalla hann kraftaverkamann. Trú margra á honum er mikil og honum fylgir mikill fjölmiðlasirkus.

Það mátti vel búast við því að það yrði einhver geðveiki í Philadelphia eftir þessi tíðindi og menn þurftu ekki að bíða lengi

Nú er Philly Pretzel factory farið að selja svokallaðar "Tebowing-pretzels". Sem sagt pretzel sem líkist stellingunni sem Tebow er þekktur fyrir. Hún kallast Tebowing.

Tebowing.vísir/getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×