Lífið

Taylor Swift og Lisa Kudrow sungu saman Smelly Cat á tónleikum

Atli Ísleifsson skrifar
Áhorfendur voru að sjálfsögðu himinlifandi með flutninginn.
Áhorfendur voru að sjálfsögðu himinlifandi með flutninginn.
Bandaríska söngkonan Taylor Swift og leikkonan Lisa Kudrow sungu saman lagið goðsagnakennda Smelly Cat á tónleikum hinnar fyrrnefndu í Staples Center í Los Angeles í gærkvöldi.

Smelly Cat varð frægt í Friends-þáttunum í flutningi Pheobe Buffay sem Kudrow túlkaði eftirminnilega.

Áhorfendur Í Staples Center voru að sjálfsögðu himinlifandi með tiltækið og þá sérstaklega þegar Kudrow datt í hlutverk Phoebe líkt og forðum daga. Margir tóku sjálfsögðu upp flutninginn á símana sína og birti á YouTube og víðar.

Sjá má flutninginn að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×