Bergur Ebbi

Fréttamynd

Töframaður á sviðinu

Aldrei minnist ég þess að hafa séð töframanni mistakast – að minnsta kosti ekki að öllu leyti. En í hvert skipti sem ég sé töframann á sviði þá smíða ég viðbragðsáætlun í höfði mínu um hvað ég myndi gera ef honum mistækist.

Bakþankar
Fréttamynd

Varúð! Brasilíu-jinx! Ekki lesa!

Óðurmaður skrifar. Ég eyddi öllum gærdeginum í að þvælast á milli sportvöruverslana í leit að sundskýlu í fánalitunum til að taka með til Brasilíu næsta sumar. Strax og flautað var til leiksloka á þriðjudagskvöld fór ég inn á expedia.com og tékkaði á flugi til Ríó.

Bakþankar
Fréttamynd

Veflyklar, PIN, PUK, FÖKK

Hvað er venjulegur maður með mörg lykil- og leyniorð í gangi? PIN-númer fyrir debet,- kreditkort og síma (og PUK ef maður gleymir PIN), lykil- og leyniorð fyrir skattinn, leyniorð fyrir vinnu- og heimatölvupóstfang, Facebook, Twitter, Amazon, FlickR

Bakþankar
Fréttamynd

Óður til stúku við Laugardalslaug

Kæra stúka við Laugardalslaug. Til að byrja með vildi ég óska þess að þú bærir betra nafn sem hæfir listaverki eins og þér. Því þú ert jú listaverk, einhvers konar skúlptúr því ekki ertu mikið "notuð“ á hefðbundinn hátt.

Bakþankar
Fréttamynd

Dvergurinn með happdrættismiða

Eruð þið búin að heyra söguna af dvergnum sem var að selja happdrættismiða og bankaði upp á á sambýli fyrir þroskahefta með þeim afleiðingum að þroskahefta fólkið handsamaði hann og lokaði inni í skáp því það hélt að hann væri álfur?

Bakþankar
Fréttamynd

Öryggi og hræðsla

Heimurinn er öruggari staður nú en fyrir tveimur áratugum. Þetta er stór fullyrðing. Mig langar næstum til að vera ósammála henni án þess að heyra rökin. Er þetta satt?

Bakþankar
Fréttamynd

Skoðanir og tíska

Nokkrum sinnum á ári kynna fatahönnuðir tísku sína. Þeir hanna nýja línu og fólk fylgist með hvernig kragar hafa síkkað, litir dekkst eða skósólar hækkað. Við vitum að þetta hefur ekkert með vísindi að gera. Tíska er bara tíska. Kannski ekki hreinn hégómi en ekki heldur praktísk. Það góða við fatatísku er þó að enginn metur hana mikilvægari en hún er. Fatatíska er smekkur en ekki hugsjón.

Bakþankar
Fréttamynd

Oh My God!

Ég man ekki eftir því að nein orð hafi verið bönnuð á heimilinu þegar ég var lítill. Það var ekki vel séð að segja "djöfullinn“ eða "fjandinn“ en það var ekki forboðið.

Bakþankar
Fréttamynd

Dr. Nilfisk og herra Kirby

Ég var gestaglaður sem barn. Ef það komu gestir í heimsókn eftir kvöldmat varð ég svo spenntur að ég gat ekki sofið. Ég man enn eftir kvöldinu þegar ryksugusölumaðurinn kom í heimsókn. Hann var að selja bandarískar gæðaryksugur frá Kirby.

Bakþankar
Fréttamynd

Mest lesið dálkurinn

Þegar netið kom fyrst til sögunnar voru margir íhaldssamir blaðamenn pirraðir á því hversu mikil áhersla var lögð á nýjustu fréttirnar hjá netmiðlunum. Nýjustu fréttirnar eru ekki endilega merkilegastar, en þær fengu mesta plássið. Í dag er þetta að breytast en við erum sannarlega að fara úr öskunni í eldinn. Í dag er það "mest lesið dálkurinn“ sem allt snýst um. "Heilbrigðari kynfæri með meira kynlífi“, "Loftsteinn á leiðinni“, "Á gólfinu var allt í viðbjóði“. Þetta voru mest lesnu fréttirnar á stærstu netfréttamiðlum landsins síðasta þriðjudag.

Bakþankar
Fréttamynd

Fegurð

Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora mark. Þannig er mál með vexti að fótboltamörk eru metin eftir fegurð.

Bakþankar
Fréttamynd

Umburðarlyndi

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins.

Bakþankar
Fréttamynd

Kennslustund í popúlisma

Við hvað kenna stjórnmálaflokkar sig? Til dæmis samstöðu, velferð, sjálfbærni, framfarir, réttlæti, sanngirni og lýðræði. Ég ætla ekki að kvarta yfir þessu. Verra væri ef val kjósenda stæði á milli flokka sem kenna sig við kúgun, afturför, einræði, stöðnun, óréttlæti og ósanngirni. Athugasemdir mínar lúta fremur að því að hversu tilgangslaust það er að nota svona hugtök í stjórnmálaumræðu. Telur einhver að til sé stjórnmálafólk á Íslandi sem vill í fullri einlægni reka "ósanngjarna“ stefnu?

Bakþankar
Fréttamynd

Mataræði og tíska

Ég var að heyra af nýjustu tískunni í mataræði. Nú er best að borða fitu og prótein. Forðast skal brauðmeti í lengstu lög og einnig allan sykur – jafnvel þó hann komi úr ávöxtum. Mjólk er nú aftur komin í tísku eftir áratugslanga eyðimerkurgöngu. Þessi tíska er áþreifanleg í matreiðsluþáttum, matreiðslubókum og almennri umræðu um mataræði og hollt líferni.

Bakþankar
Fréttamynd

Með þökk fyrir allt

Á árunum undir lok og fljótt eftir seinna stríð fæddist það fólk sem hefur byggt upp Ísland nútímans. Þetta fólk, sem sleit barnskóm sínum á sama tíma og lýðveldið okkar, er af þeirri kynslóð sem man eftir skorti, haftastefnu, harmonikkuböllum og síðar bítlum, verbúðum, námsmannabyltingum og þeirri tilfinningu að sitja við kertaljós í skammdeginu og finna eplalykt á jólum. Við eigum þessu fólki margt að þakka. Kannski of margt.

Skoðun
Fréttamynd

Játning

Eins og góður og gegn plebbi er ég alltaf að leita að einhverju til að vera stoltur af. Það skiptir mig minna máli hvort afrekið sem ég er stoltur af megi á

Skoðun
Fréttamynd

Íslenski stíllinn

Afhverju eru tóm refabú og laxeldi um allar sveitir landsins? Hvers vegna eru mannlaus íbúðar­hverfi í heiðardölum umhverfis höfuðborgina? Hvernig stendur á því að þrátt fyrir að Íslendingar séu með tekjuhæstu þegnum heims miðað við landsframleiðslu er opinber þjónusta rétt svo í meðallagi?

Skoðun