Baugsmálið

Fréttamynd

Deilt um hvort úrskurður ógildi rannsókn

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að bæði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, væru vanhæfir og skyldu víkja sæti við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi. Lögmaður eins fimmmenninganna telur úrskurðurinn ónýta rannsóknina en því er dómurinn ekki sammála.

Innlent
Fréttamynd

Baugsmenn ætla ekki að kæra úrskurðinn

Verjendur Baugsmanna ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdómur Reykjavíkur þess efnis að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, þurfi ekki að bera vitni um samskipti sín við við blaðamann á Blaðinu. Lögfræðingar Baugsmanna segja þessa ákvörðun tekna þar sem þeir vilji ekki tefja málið frekar heldur klára það sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

Vitnaleiðslur geti tekið hátt í mánuð í Baugsmáli

Búast má við að vitnaleiðslur í tenglsum við þá 18 ákæruliði Baugsmálsins sem eftir eru fyrir héraðsdómi taki á bilinu 20-28 daga en þær hefjast 12. febrúar. Þetta kom fram við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurður héraðsdóms frá því morgun kærður til Hæstaréttar

Málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur um hæfi yfirmanna efnahagsbrotadeildar til að fara með rannsókn á skattamálum fimm manna tengdum Baugi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Til stóð að halda áfram með málið klukkan 14 en þá tilkynntu lögmenn Baugsmanna að þeir hefðu ákveðið að kæra úrskurð dómsins frá því í morgun til Hæstaréttar.

Innlent
Fréttamynd

Yfirmenn hjá Ríkislögreglustjóra bera ekki vitni

Héraðdómur Reykjavíkur hafnaði fyrir stundu þeirri kröfu fimm manna tengdum Baugi að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. skyldu bera vitni fyrir dómnum í tengslum við ákæru Baugsmanna um að þeir séu vanhæfir til að fara með rannsókn á hendur Baugsmönnum vegna meintra skattalaga brota þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurðar um vitnisburð að vænta fyrir hádegi

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kveður upp úr um það klukkan 11. 45 hvort Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra skuli bera vitni fyrir dómnum í tengslum við ákæru fimm aðila tengdum Baugi um að þeir séu vanhæfir til að fara með ákærur á hendur Baugsmönnum vegna meintra skattabrota þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Ákveðið á morgun hvort ríkislögreglustjóri beri vitni

Héraðsdómur Reykjavíkur kveður upp úr um það á morgun hvort Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, skuli bera vitni fyrir dómnum, vegna ákæru verjenda Baugsfjölskyldunnar um að þeir séu vanhæfir, til að fara með ákærur á hendur henni. Þinghald í málinu er síðan á dagskrá eftir hádegi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Kæra vegna meints vanhæfis tekin fyrir klukkan 15

Kæra fimm manna tengdum Baugi á hendur yfirmönnum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra vegna meints vanhæfis þeirra í rannsókn á skattamálum Baugsmanna verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag.

Innlent
Fréttamynd

FÍS harmar óviðeigandi samhengi hlutanna

Í framhaldi af viðtölum við Jóhannes Jónsson í Þættinum "Örlagadagurinn" á Stöð 2 og NFS tvo sunnudaga í ágúst harmar stjórn FÍS - Félags íslenskra stórkaupmanna, að félagið og einstakir forsvarsmenn þess hafi verið nefndir á nafn í óviðeigandi samhengi Í tilkynningu FÍS segir að fjölmörg aðildarfélög FÍS eigi í miklum og góðum viðskiptum við ýmis fyrirtæki Baugs þar sem báðir njóti góðs af. Það sé því síst í þeirra þágu að fræjum tortryggni sé sáð á þessum vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Ótrúlegt að saksóknari hafi íhugað endurákæru

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group hf. segir einkennilegt að hafa þurft að sitja undir því svo vikum skiptir að settur saksóknari í Baugsmálinu segðist vera að íhuga endurákæru. Því verði vart trúað að settur saksóknari hafi hugleitt það í alvöru eftir þá dóma sem á undan höfðu gengið.

Innlent
Fréttamynd

Ekki ákært aftur vegna alvarlegustu brotanna í Baugsmálinu

Settur saksóknari í Baugsmálinu ætlar ekki að ákæra í þriðja sinn vegna alvarlegustu brotanna í þessu máli. Hann tilkynnti þessa niðurstöðu í dag ásamt því að benda á að enn væru til efnislegrar meðferðar fyrir dómi, átján alvarlegir ákæruliðir.

Innlent
Fréttamynd

Einum lið af 19 vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag fyrsta ákærulið af 19 í Baugsmálinu frá dómi. Sá ákæruliður snýr að sölu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Vöruveltunni til Baugs. Dómurinn hafnaði hins vegar kröfu verjenda um að vísa hinum átján ákæruliðunum frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Ákærðu færu mikinn í fjölmiðlum

Settur saksóknari í Baugsmálinu sagði í Héraðsdómi í morgun, að ákærðu í málinu hefðu farið mikinn í fjölmiðlum með ósanngjarni gagnrýni á ákæruvald og dómsmálaráðherra. Verjandi Jóns Geralds Sullenberger sagði engin ný gögn komin fram í málinu sem réttlættu að hann væri ákærður.

Innlent
Fréttamynd

Segist hafa greitt skatta sem nái til þátta í skýrslutöku

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að hann hafi þegar greitt 66 milljónir króna í skatta sem nái til þeirra þátta sem hann hafi verið boðaður til skýrslutöku vegna hjá ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni.

Innlent
Fréttamynd

Munnlegur málflutningur í Baugsmálinu

Nú stendur yfir munnlegur málflutningur í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, hefur í morgun fært rök fyrir því að kaup Baugs á Vöruveltunni, sem átti 10-11 búðirnar, séu tæk til efnislegrar meðferðar fyrir dómi. Verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar segir tugi staðreyndavilla vera í ákæruskjálinu.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa ekki að bera vitni í Baugsmálinu

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, um að settur ríkissaksóknari og dómstjóri Hérðasdóms Reykjavíkur, þyrftu ekki að vera vitni í Baugsmálinu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja vitnisburð um samskipti dómsstjóra og saksóknara

Verjendur tveggja sakborninga í Baugsmálinu krefjast þess að settur saksóknari í málinu og dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur beri vitni um samskipti sín áður en ákæra var gefin út að nýju. Þeir telja samskiptin óeðlileg og brjóta í bága við lög.

Innlent
Fréttamynd

Vilja settan ríkissaksóknara í vitnastúku

Fyrirtaka hófst í Baugsmálinu í morgun en þar verður meðal annars tekin afstaða til þeirrar kröfu verjenda í málinu um að Sigurður Magnús Tómasson, settur ríkissaksóknari, og Helgi I. Jónsson, dómsstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, verði leiddir í vitnastúku í tengslum við skipan dómara í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Ætla ekki að taka þátt í umfjöllun um Baug í Kastljósi

Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs, Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs og verjendur Jóns Ásgeirs og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, þeir Gestur Jónsson og Jakob Möller Hæstaréttarlögmenn, hafa sent frá sér yfirlýsingar vegna umfjöllunar um Baugsmálið í Kastjósi Ríkissjónvarpsins í gær.

Innlent
Fréttamynd

Nú ákært í 19 af 32 liðum sem Hæstiréttur vísaði frá

Sérstakur saksóknari í Baugsmálinu hefur endurútgefið 19 af þeim 32 liðum upphaflegrar ákæru, sem Hæstiréttur Íslands vísaði frá dómi hinn 10. október sl. Að þessu sinni eru þrír ákærðir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson. Ákæran verður þingfest fimmtudaginn 27. apríl nk. Jón Ásgeir segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kvöld að ákvörðun um nýjar ákærur virðist hafa verið tekin þegar í upphafi. Orð dómsmálaráðherra um að dómstólar skyldu hafa síðasta orðið í málinu, hafi nú fengið merkingu í reynd enda ljóst að hinn sérstaki saksóknari hefði fengið skýr skilaboð til framkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Baugsdómur á morgun

Dómur verður kveðinn upp í átta ákæruliðum í Baugsmálinu á morgun. Dómsniðurstaðan kann að hafa áhrif á ákvörðun um það hvort ákært verði að nýju í veigamestu ákæruliðunum þrjátíu og tveimur sem vísað var frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Jónínubréf á Netið

Tölvupóstur, sem virðist innihalda afar viðkvæm og persónuleg einkabréf á milli Jónínu Benediktsdóttur og Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, hefur verið settur á bloggsíðu sem hýst er í Bandaríkjunum. Lögmaður Jónínu segir málið verða kært til lögreglu, en slóð þessara bréfa verði væntanlega hægt að rekja til þeirra sem létu Fréttablaðinu í té tölvupóst sömu aðila.

Innlent
Fréttamynd

Baugsmeðferð kann að brjóta gegn Mannréttindasáttmála

Ef ákæruvaldið kýs að ákæra að nýju í þeim 32. ákæruliðum sem Hæstiréttur vísðai frá dómi í október kann það að stangast á við 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta segir Danski lögmaðurinn, Tyge Trier sem Baugur fékk til að meta þetta mál. Hann segirst myndu ráðleggja sakborningum að vísa málinu til Mannréttindadómstólsins ef ákært verður í þessum liðum á nýjan leik.

Innlent