Innlent

Tekist á um hæfi Ríkislögreglustjóra til rannsóknar

MYND/Róbert

Tekist var á um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag hvort embætti Ríkislögreglustjóra væri hæft til að rannsaka skattamál fimm manna tengdum Baugi vegna yfirlýsinga yfirmanna hjá embættinu í fjölmiðlum.

Um er að ræða einn anga Baugmálsins sem haldið var áfram í dag eftir að lögmenn fimmmenninganna ákváðu að áfrýja ekki dómi héraðsdóms um að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, skyldu ekki bera vitni í málinu.

Málið snýst um meint skattalagbrot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóhannesar Jónssonar, Kristínar Jóhannesdóttur, Tryggva Jónssonar og Stefáns Hilmarssonar, sem öllu eru eða voru tengd Baugi. Lögmenn þeirra fara fram á það að rannsókn ríkislögreglustjóra á málinu verði dæmd ólögmæt en til vara að héraðsdómur úrskurði að forsvarsmönnum embættis Ríkislögreglustjóra, Haraldi Johannessen og Jóni H. B. Snorrasyni, og þar með öllum starfsmönnum embættisins, verði skylt að víkja sæti í málinu.

Í rökstuðningi sínum vísa lögmenn fimmmenninganna til þess að embætti Ríkislögreglustjóra hafi þegar tekið afstöðu til sektar þeirra og brotið þannig gegn reglu um að sakborningar teljist saklausir uns sekt þeirra hafi verið sönnuð. Vísa lögmennirnir meðal annars til orða bæði Haraldar í Blaðinu máli sínu til stuðnings. Þá segja þeir einnig að forsvarsmenn Ríkislögreglustjóra hafi lýst sig vanhæfa til að fara málin á hendur Baugsmönnum.

Jón H. B. Snorrason stóð fyrir vörnum í héraðsdómi í dag og sagði að rangt hefði verið haft eftir Haraldi í Blaðinu. Þá sagði hann misskilning að ummæli ríkislögreglustjóra í fréttum Stöðvar 2 11. október í fyrra fælu í sér yfirlýsingar um vanhæfi. Sagði hann enn fremur að yfirmenn Ríkislögreglustjóra gætu ekki borið ábyrgð á framsetningu blaðamanna.

Það kemur í hlut Eggert Óskarsson héraðdsómara að kveða upp úrskurð í málinu en ekki liggur fyrior hvenær það verður gert.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×