Páll Magnússon

Fréttamynd

Ráð­herrann ræður

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti einróma fyrir helgi að skora á fjármálaráðherra að draga tilbaka kröfur um að Vestmannaeyjabær láti af hendi til ríkisins stóran hluta af Heimaey og allar úteyjarnar.

Skoðun
Fréttamynd

Kröfur fjár­mála­ráð­herra – ekki Óbyggðanefndar

Nú liggur það fyrir í viðtali á mbl.is í dag að fjármálaráðherra ætlar halda til streitu kröfu um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar og allar úteyjarnar. Þessi kröfugerð varð ekki til hjá Óbyggðanefnd, eins og ráðherrann gefur til kynna, heldur í fjármálaráðuneytinu undir forræði ráðherrans.

Skoðun
Fréttamynd

Auka­at­riðin og aðal­at­riðin

Mér þótti athyglisvert að lesa hér á Vísi að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefði sagt þetta á Sprengisandi í gærmorgun: „Páll Magnússon veður fram á ritvöllinn og segist hafa heyrt í manni sem skráði sig fyrir bréfum og seldi þau daginn eftir. Hvernig stendur á því að blaðamenn flytja svona vitleysu umbúðalaust og fleyta þessu áfram í umræðuna þegar allir vita að í fyrsta lagi var uppgjörsdagur á mánudegi og útboðið fór fram á þriðjudegi? Það gat enginn selt daginn eftir.“

Skoðun
Fréttamynd

Er ráðherrann ekki á förum?

Nú er liðið eitt sumar síðan upplýst var að menntamálaráðherra bað um og fékk persónulegan fjárstuðning frá aðila sem hann síðan veitti póli­tíska fyrirgreiðslu vegna viðskiptahagsmuna í Kína. Pólitísk spilling verður ekki augljósari en þetta.

Skoðun
Fréttamynd

Ærðir álitsgjafar

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum er þeirrar skoðunar að ótímabærar upplýsingar til fjölmiðla um meint kynferðisbrot geti verið skaðlegar af tveimur ástæðum: Í fyrsta lagi geti þær aukið enn á þjáningar þolandans, m.a. í erfiðu kæruferli fyrstu dagana eftir brotið. Í öðru lagi geti þær torveldað rannsókn málsins og auðveldað gerandanum að komast undan. Hvort tveggja er stutt svo gildum og augljósum rökum að óþarfi er að fjölyrða um þau hér.

Skoðun
Fréttamynd

Spilling ráðherra

Að ráðherra þiggi fjárhagslegan greiða úr hendi óskyldra aðila vegna persónulegra vandamála þarf ekki að vera spilling.

Skoðun
Fréttamynd

Á reiki um RÚV

Það var nokkuð kyndugt fyrir kunnugan að fylgjast með þeim umræðum sem spunnust um Ríkisútvarpið við lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir 2015 núna fyrir áramótin. Til að skilja skringilegheitin þarf þó að líta eitt ár aftur í tímann – til afgreiðslu fjárlaga fyrir 2014,

Skoðun
Fréttamynd

Rás 1

Núna vona ég að það sé lag til að segja þó ekki væri nema þetta: Það er ekki verið að leggja niður Rás 1. Það er ekki verið að rífa hana á hol. Það er ekki verið að slökkva á menningarvitanum.

Skoðun
Fréttamynd

Staðreyndir og staðleysur

Síðast þegar ég átti orðastað við ritstjóra Morgunblaðsins í hans eigin blaði birtist svar hans við grein minni á undan greininni sjálfri.

Skoðun
Fréttamynd

Afvegaleiddur aðstoðarritstjóri

Afvegaleiddur aðstoðarritstjóri - Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2 Satt best að segja finnst mér að Jón Kaldal ætti af umhyggju fyrir sjálfsmynd sinni sem blaðamaður að reyna að gleyma því sem fyrst að hafa skrifað þennan leiðara. Svo ætti Jón að sjá sóma sinn í því að biðja fyrrnefndan fréttamann afsökunar á að hafa vænt hann um lygi. Ég reikna hins vegar ekki með því að Jón Kaldal geri það - og hafi hann þá skömm fyrir.

Skoðun