Lífið

Svona áttu að lauma þér út þegar þú ert búinn að svæfa börnin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það kannast eflaust flestir foreldrar við þann höfuðverk að svæfa börnin sín. Caryn Chelin Morris þekkir í það minnsta það vandamál og stundum eru foreldrar tilbúnir að gera flest allt til að börnin sofni.

Tyrone Morris, eiginmaður Caryn, deilir óborganlegu myndbandi á Facebook þar sem sjá má mömmuna mjaka sér út úr barnaherberginu án þess að sonurinn vakni.

Þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á myndbandið ellefu milljón sinnum. Þetta er alvöru tækni hjá konunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×