Svikahrappurinn var náðaður fyrir áratug 21. apríl 2010 07:15 Maðurinn er talinn hafa egnt fyrir fólk meðal annars með því að lofa því góðri ávöxtun á fjármunum sínum ef það aðstoðaði hann við að losa gjaldeyri með fjárframlögum.
Hálfsextugur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna meintra stórfelldra fjársvika var náðaður af heilsufarsástæðum fyrir um tíu árum og þurfti því ekki að afplána tuttugu mánaða fangelsi, sem Hæstiréttur hafði þá dæmt hann í, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Dómsmálaráðuneytið vildi ekki staðfesta þetta við blaðið. Maðurinn var dæmdur fyrir misneytingu gagnvart áttræðri, heilabilaðri konu, með því að hafa fengið hana margoft til að taka fjárhæðir út af bankareikningi sínum og afhenda honum, ráðstafa veðskuldabréfi í hans þágu og undirrita erfðaskrá þess efnis að allar skuldir hans við hana skyldu falla niður við andlát hennar. Konan hafði verið gift athafnamanni, sem lét eftir sig mikla fjármuni. Hún sat í óskiptu búi. Manninum sem nú situr inni vegna meintra fjársvika kynntust hjónin þegar hann tók að sér málningarvinnu fyrir þau. Eftir fráfall eiginmannsins var svikarinn í miklu sambandi við ekkjuna, ávann sér traust hennar og annaðist ýmsa hluti fyrir hana. Maðurinn ók henni í bankann og beið fyrir utan meðan hún sótti peningana, sem hún lét hann hafa. Í sumum tilvikum lét hún hann hafa ávísanir. Með þessum hætti tæmdi hún bankareikning sinn. Ekki var ljóst hvað varð um stóran hluta fjárins. Auk tuttugu mánaða fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða gömlu konunni ríflega 30 milljónir króna vegna þessa. Hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi er 24 mánaða fangelsi. Þessi sami maður hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. maí, grunaður um að hafa svikið að minnsta kosti 300 milljónir króna út úr nær hundrað manns. Mest voru umsvif mannsins í Landsbankanum og hjá Byr sparisjóði, en allir reikningar hans eru til rannsóknar hjá lögreglu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er maðurinn grunaður um að hafa boðið fólki væna ávöxtun fjár síns ef það hjálpaði honum til að losa gjaldeyri sem hann kvaðst eiga í bönkum erlendis. Fengju viðkomandi þá erlendan gjaldmiðil á miklu lægra verði en skráning segði til um. Þetta er á sömu nótum og margumræddir Nígeríusvindlarar hafa borið sig að. Þá virðist sem maðurinn hafi í einhverjum tilvikum notað fjármuni frá einum til að greiða með skuld sína við annan. Maðurinn mun hafa haft frumkvæði að því að komast í samband við fólk, þar á meðal einhverja sem hann þekkti frá fyrri tíð. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sjá meira